Málsnúmer 2212002F

Vakta málsnúmer

Sveitarstjórn Rangárþings ytra - 11. fundur - 08.02.2023

  • Oddi bs - 7 Á fundinn mæta Kristín Sigfúsdóttir skólastjóri grunnskólans á Hellu og Yngvi Karl Jónsson skólastjóri grunnskólans á Laugalandi og gera grein fyrir þeim álitaefnum sem uppi eru varðandi málefnið. Skólarnir hafa skoðað ýmsar útfærslur sem hafa bæði kosti og galla og eru tilbúnir í viðræður hvernig best sé að þjónusta börn.

    Stjórn þakkar fyrir góða yfirferð og telur að þörf sé á að rýna þetta mál betur og æskilegt að skipaður verði vinnuhópur um verkefnið.
    Bókun fundar Sveitarstjórn frestar afgreiðslu málsins þangað til að afstaða heilsu-, íþrótta- og tómstundanefndar og hreppsnefndar Ásahrepps liggur fyrir.

    Samþykkt samhljóða.
  • Oddi bs - 7 Skólastjórnendur grunnskólanna telja að fræðsla sem þessi geti nýst í skólastarfinu. Bókun fundar Lagt til að sveitarstjóra verði falið að afla upplýsinga um kostnað og með hvaða hætti samtökin geti komið að þessu máli og leggja fyrir næsta byggðarráðsfund.

    Samþykkt samhljóða.