Málsnúmer 2305044

Vakta málsnúmer

Heilsu,- íþrótta- og tómstundanefnd - 7. fundur - 30.05.2023

Fara yfir tilnefningar og velja íþróttamanni ársins 2022 í Rangárþingi ytra.
Auglýst verður eftir tilnefningar frá íbúum í sveitarfélagsins í næstu Búkollu og gegnum heimasíðu sveitarfélagsins. Sendur verður póstur um tilnefningar til félagana þar sem tímafrestur var frekar knappur.

Heilsu,- íþrótta- og tómstundanefnd - 7. fundur - 30.05.2023

Fara yfir reglugerð fyrir val á íþróttamanni ársins í Rangárþingi ytra og leggja til breytingar ef það á við.
Nefndinn leggur til að farið verði í breytingar á reglugerð um val á íþróttamanni ársins fyrir keppnisárið 2023.

Heilsu,- íþrótta- og tómstundanefnd - 8. fundur - 11.09.2023

Endurskoðun á reglum kringum val á íþróttamanni ársins og hugsanlegar viðbætur við atburðinn.
Nefndin fór yfir reglur um val á íþróttamanni ársins, lagt er til að formaður og Sóley nefndarmaður verði falið að uppfæra reglur í samræmi við umræður á fundinum, og leggja fram tillögu á næsta fundi nefndarinnar.

Heilsu,- íþrótta- og tómstundanefnd - 8. fundur - 06.11.2023

Endurskoðun á reglum kringum val á íþróttamanni ársins og hugsanlegar viðbætur við atburðinn með því í huga að hugasanlega velja einn fyrir Rangárvallasýslu.
Farið var yfir reglugerðina og hún yfirfarinn og uppfærð. Tillaga send til sveitastjórna til samþykktar.

Heilsu,- íþrótta- og tómstundanefnd - 9. fundur - 05.12.2023

Fara yfir framkvæmd og val á íþróttamanns ársins 2024.
Farið yfir málið og tekin ákvörðum um að haldið verði hátið laugardaginn 6.janúar 2024 í Menningarsalum á Hellu.
Kallað verður eftir tilnefningum frá íþróttafélögum og almenning um val á íþróttamanni ársins 2024. Einnig verða veittar viðurkenningar fyrir framúrskarandi árangur á árinu 2023.
Tilnefningum frá félögum og almenningi þarf að skila á netfangið ragnar@ry.is fyrir 20. desember 2023.

Heilsu,- íþrótta- og tómstundanefnd - 10. fundur - 08.01.2024

Fara yfir tilnefningar, velja íþróttamann ársins fyrir 2023.Eining fara yfir tillögur um viðkenningar fyrir framúrskarandi árangur 2023.
Farið yfir tilnefningar til íþróttamanns og íþróttakonu Rangárþings ytra ásamt öðrum tilnefningum fyrir framúrskarandi árangur á árinu 2023. Verðlaunaafhending muna fara fram í febrúar.

Heilsu,- íþrótta- og tómstundanefnd - 14. fundur - 06.05.2024

Velja dagsetningu til vals á Íþróttamanni ársins 2024.
Nefndin velur laugardagskvöldið 17. ágúst fyrir val á íþróttamanni ársins 2023 í kvölddagsskrá á Töðugjöldum 2024.

Heilsu,- íþrótta- og tómstundanefnd - 17. fundur - 07.11.2024

Velja dagsetningu fyrir afhendingu íþróttakonu og manns RY

og auglýsa eftir íþróttaafrekum.
Verkefnisstjóri íþrótta- og fjölmenningarmála hefur nú þegar beðið íþróttafélögin og HSK að senda inn tillögur.

Allir sem hafa lögheimili í Rangárþingi ytra eiga rétt á tilnefningu fyrir íþróttaafrek.
Allir sem hafa lögheimili í Rangárþingi ytra og verða 16 ára á því ári sem er verið að veita fyrir, eiga rétt á tilnefningu til íþróttakonu og -manns ársins.

Val á dagsetningu fyrir afhendingu viðurkenninga fyrir íþróttakonu og manns RY 2024.
Nefndin kaus laugardaginn eftir þrettándann, 11. janúar 2025.

Heilsu,- íþrótta- og tómstundanefnd - 18. fundur - 02.01.2025

Íþrótta- og tómstundanefnd sér um undirbúning að vali íþróttakonu og manns ársins. Tilnefningar skulu koma frá öllum íþrótta- og ungmennafélögum í Rangárþingi ytra og einnig frá öðrum félögum innan vébanda ÍSÍ í sveitarfélaginu. Íþrótta- og tómstundanefnd mun auglýsa eftir tilnefningum frá íþrótta- og tómstundafélögum í sveitarfélaginu, en einnig skal almenningi gefinn kostur á að tilnefna íþróttakonu og mann ársins.



Með tilnefningu skal fylgja greinargerð um árangur og rökstuðningur fyrir tilnefningu viðkomandi. Skilyrði er að viðkomandi eigi lögheimili í Rangárþingi ytra og sé a.m.k. 16 ára á árinu. Gerð er krafa til þess að íþróttakonan og maðurinn sé góð fyrirmynd innan vallar sem utan.



Reglur á íþróttamanni ársins yfirfarnar og tillaga til leiðréttingar á orðalagi.
Íþrótta- og tómstundanefnd sér um undirbúning að vali íþróttakonu og manns ársins. Tilnefningar skulu koma frá öllum íþrótta- og ungmennafélögum í Rangárþingi ytra og einnig frá öðrum félögum innan vébanda ÍSÍ í sveitarfélaginu. Íþrótta- og tómstundanefnd mun auglýsa eftir tilnefningum frá íþrótta- og tómstundafélögum í sveitarfélaginu, en einnig skal almenningi gefinn kostur á að tilnefna íþróttakonu og mann ársins.

Með tilnefningu skal fylgja greinargerð um árangur og rökstuðningur fyrir tilnefningu viðkomandi. Skilyrði er að viðkomandi eigi lögheimili í Rangárþingi ytra og sé a.m.k. 16 ára á árinu. Gerð er krafa til þess að íþróttakonan og maðurinn sé góð fyrirmynd innan vallar sem utan.

Farið er yfir tilnefningar og kosið um íþróttamann og íþróttakonu ársins. Tilkynnt verður um valið þann 11.1 kl. 11 í Safnaðarheimilinu á Hellu.

Lagt var fyrir breytingatillaga um breytingu á orðalagi um reglur um val á íþróttamanni ársins. Þar var skýrt að valið sé íþróttakona og íþróttamaður ársins. Þessar breytingar voru samþykktar einróma.

Heilsu,- íþrótta- og tómstundanefnd - 19. fundur - 20.02.2025

Íþróttakona og -maður ársins - viðburður.

Hvað gekk vel, hvað má betur fara?
Viðburðurinn ræddur og hugmyndir fyrir næsta ár.

Heilsu,- íþrótta- og tómstundanefnd - 22. fundur - 04.09.2025

Tillaga um breytingu á reglum. Bæta inn vali á sjálfboðaliða ársins.
Tillaga um breytingu á reglum. Bæta inn vali á sjálfboðaliða ársins.
Frestað til næsta fundar.

Heilsu,- íþrótta- og tómstundanefnd - 23. fundur - 29.09.2025

Fara yfir reglur um val á íþróttakonu og -manni ársins. Ræða val á sjálfboðaliða og velja dagsetningu á viðburðinn. Lagt er til laugardaginn 10. janúar.
Nefndin fór yfir reglur um val á íþróttakonu og -manni ársins.

Nefndin samþykkti að halda hátíðina laugardaginn 10. janúar kl. 11.

Samþykktar voru tvær breytingar á reglum um val á íþróttakonu og -manni ársins:

"Einnig má tilnefna aðila fyrir framúrskarandi störf í þágu íþrótta- og tómstundamála í sveitarfélaginu."
og "Skila þarf tilnefningum inn fyrir 1. desember ár hvert. Íþrótta- og fjölmenningafulltrúi." í stað
"Skila þarf tilnefningum inn fyrir 15. desember ár hvert. Íþrótta- og fjölmenningafulltrúi."

Heilsu,- íþrótta- og tómstundanefnd - 26. fundur - 05.01.2026

Val á íþróttakonu og -manni ársins 2025.
Val á íþróttakonu og -manni ársins 2025.

Heilsu,- íþrótta- og tómstundanefnd - 27. fundur - 29.01.2026

Rýnt í viðburðinn Íþróttakona og -maður ársins 2025 sem haldin var 10. janúar sl.
Rýnt í viðburðinn Íþróttakona og -maður ársins 2025 sem haldin var 10. janúar sl.
Viðburðurinn heppnaðist mjög vel, góð mæting af verðlaunahöfum. Sveitastjórnum nágrannasveitarfélaga, fulltrúum íþróttafélaga, svæðisfulltrúum íþróttahéraða og fleirum var boðið til viðburðarins. Að auki var viðburðinn opinn öllum áhugasömum.

Heilsu,- íþrótta- og tómstundanefnd - 5. fundur - 03.11.2026

Yfirfara reglur um íþróttamann og íþróttakonu ársins og ákveða dagsetningu, staðsetningu og framkvæmd viðburðar.
Nefndin leggur til að hátíðaleg athöfn vegna útnefningar íþróttamanns ársins 2026 fari fram laugardaginn 9. janúar 2027 í nýjum hátíðarsal Grunnskólans Hellu. Verðlaunahóf verði með sama sniði og undanfarin ár, þar sem íþróttafólki sveitarfélagsins verði veitt viðurkenning fyrir árangur sinn og framlag til íþróttastarfs á liðnu ári.

Nefndin samþykkir tillögu Á-listans um breytingu á reglum um Íþróttamann ársins.