Málsnúmer 2402011

Vakta málsnúmer

Byggðarráð Rangárþings ytra - 22. fundur - 28.02.2024

Lögð fram beiðni frá UMF Merkihvoli ehf um styrk á móti fasteignagjöldum Brúarlunds áranna 2022-2024.

Byggðarráð óskar eftir því að fá rekstaryfirlit fyrir árin 2020-2023 og afgreiðslu frestað til næsta fundar byggðarráðs.

Samþykkt samhljóða.

Byggðarráð Rangárþings ytra - 23. fundur - 27.03.2024

UMF Merkihvoll óska eftir styrk á móti fasteignagjöldum ársins 2023-2024 vegna félagsheimilisins Brúarlundar.

Málinu frestað vegna ófullnægjnandi gagna.

Byggðarráð Rangárþings ytra - 28. fundur - 10.07.2024

UMF Merkihvoll óska eftir styrk á móti fasteignagjöldum ársins 2023-2024 vegna félagsheimilisins Brúarlundar. lögð eru fram frekari gögn frá unmennafélaginu varðandi rekstur félagsins árin 2020-2023. Í gildi er samningur milli aðila um leiguverð fyrir húsið sé sú upphæð sem jafngildir fasteignagjöldum o.fl. vegna hússins.

Byggðarráð leggur til að hafna erindinu þar sem í gildi er samnningur milli aðila.

Samþykkt samhljóða.

Byggðarráð Rangárþings ytra - 45. fundur - 28.01.2026

Lögð er fram að nýju beiðni Ungmennafélagsins Merkihvols um að fasteignagjöld af eigninni Brúarlundi verði felld niður á móti styrk frá sveitarfélaginu. Fram kemur að starfsemi félagsins sé alfarið rekin án hagnaðarsjónarmiða og byggir alfarið á sjálfboðavinnu. Tekjur félagsins eru takmarkaðar og renna fyrst og fremst í rekstur, viðhald húsnæðis og skipulagningu viðburða sem þjóna almenningi og sérstaklega börnum og ungmennum í sveitarfélaginu.

Byggðarráð telur að samningurinn útiloki ekki að Umf. Merkihvoll geti sótt um styrk á móti fasteignagjöldum í samræmi við reglur sveitarfélagsins og leggur til að veittur verði styrkur vegna allra ógreiddra álagðra fasteignagjalda af Brúarlundi skv. gildandi reglum auk þess sem samsvarandi styrkur verði veittur vegna álagðra gjalda vegna ársins 2026.

Samþykkt samhljóða.