Málsnúmer 2402047
Vakta málsnúmerByggingarnefnd um uppbyggingu á skólahúsnæði á Hellu - 9. fundur - 19.02.2024
Farið yfir verðáætlun í hönnun leikskólabyggingar og næstu skref rædd.
Byggðarráð Rangárþings ytra - 22. fundur - 28.02.2024
Byggingarnefnd um uppbyggingu á skólahúsnæðu á Hellu vísaði á fundi 19. feb. s.l. til byggðarráðs að hefja hönnun á leikskólabyggingu sem þriðja áfanga verksins. Byggðarráð leggur til að ráða Arkís til að fullnaðarhanna bygginguna en Arkís hefur hannað fyrri tvo áfanga skólahúsnæðisins. Í framhaldi verði leitað tilboða við verkfræðihönnun. Forstöðumanni eigna- og framkvæmdasviðs falið að vinna málið áfram.
Samþykkt samhljóða.
Samþykkt samhljóða.
Byggingarnefnd um uppbyggingu á skólahúsnæði á Hellu - 11. fundur - 01.07.2024
Kynnt drög að hönnun leikskóla senm er þriðji áfangi stækkunar skólasvæðis.
THT fór yfir stöðu hönnunar á 3. áfanga sem er leikskólahlutinn. Hönnuðir eru búnir að funda með leikskólastjórum og verið er að vinna úr þeim samtölum. Lögð er fram hugmynd að rýmisáætlun leikskólans og gert er ráð fyrir frekari fundum með hönnuðum og stjórnendum leikskóla.
Lagt fram til kynningar.
Lagt fram til kynningar.
Byggðarráð Rangárþings ytra - 33. fundur - 22.01.2025
Lagt fram minnisblað frá Tómasi Hauki Tómassyni forstöðumanni eigna- og framkvæmdasviðs varðandi niðurstöður verðkannana í verkfræðihönnun vegna raflagna, brunahönnunar, jarðvinnu, burðarvirkis, lagna- og loftræstingar og hljóðvistar vegna nýbyggingar leikskólans Heklukots á Hellu.
Lagt er til að semja við lægstbjóðendur sem eru, Voltorka ehf vegna raflagna að fjárhæð kr. 5.795.000, Lotu ehf vegna brunahönnunar að fjárhæð kr. 2.380.060, Verkfræðistofunar Þráinn og Benedikt ehf vegna jarðvinnu, burðarvirkis, lagna- og loftræstingar að fjárhæð kr. 23.990.000 og Myrru hljóðstofu ehf vegna hljóðvistar að fjárhæð kr. 2.721.800 eða samtals að fjárhæð kr. 34.886.800. Tilboðin voru innan kostnaðaráætlunar. Jafnframt verði sveitarstjóra falið að undirita samninga við viðkomandi aðila.

Framkvæmda- og eignanefnd - 2. fundur - 28.04.2025
Farið yfir stöðu hönnunar Heklukots.
Tómas Haukur fór yfir stöðu hönnunar vegna byggingu á 3. áfanga við stækkun skólasvæðisins á Hellu vegna leikskólans Heklukots. Hönnun skólans er á lokastigi og gert ráð fyrir að bjóða út jarðvinnu vegna verksins í júní og jarðvinna hefjist eftir Töðugjöld.
Framkvæmda- og eignanefnd - 3. fundur - 23.06.2025
Tómas Haukur fór yfir stöðu hönnunar vegna byggingu á 3. áfanga við stækkun skólasvæðisins á Hellu vegna leikskólans Heklukots. Hönnun skólans er á lokastigi og gert ráð fyrir að bjóða út jarðvinnu vegna verksins í júlí og jarðvinna hefjist í lok ágúst/byrjun september. Verið er að vinna að deilihönnun og útboðsgögnum fyrir burðarvirki og innri frágang.
Framkvæmda- og eignanefnd - 4. fundur - 03.09.2025
Tómas Haukur fór yfir stöðu hönnunar vegna byggingu á 3. áfanga við stækkun skólasvæðisins á Hellu vegna leikskólans Heklukots. Hönnun skólans er á lokastigi og gert er ráð fyrir að henni verði lokið í seinni hluta október.
Útboðsgögn vegna jarðvinnu eru klár og gert ráð fyrir að bjóða út jarðvinnu vegna verksins í næstu viku. Gert ráð fyrir að fyrri hluta verksins verði lokið um miðjan desember. Stefnt er að því að bjóða út burðarvirki um áramót.
Lagðar fram niðurstöður verðkönnunar í lóðahönnun leikskólans. Lagt til að semja við Landhönnun sem var lægstbjóðandi í verkið.

Framkvæmda- og eignanefnd - 5. fundur - 06.10.2025
Tilboð í jarðvinnu.
Lögð fram niðustaða útboðs í jarðvinnu. Lagt er til að samið verði við lægstbjóðanda Stórverk ehf en tilboðið hljóðaði upp á 96,1 milljón sem er 93% af kostnaðaréætlun. Sveitarstjóra verði falið að ganga frá samningi.
Samþykkt samhljóða.
Samþykkt samhljóða.
Framkvæmda- og eignanefnd - 6. fundur - 29.10.2025
Tómas Haukur fór yfir stöðu framkvæmda vegna byggingu á leikskóla á Hellu. Gert er ráð fyrir að jarðavinna hefjist í byrjun nóvember.
Framkvæmda- og eignanefnd - 8. fundur - 15.12.2025
Tómas Haukur fór yfir stöðu framkvæmda vegna byggingu á leikskóla á Hellu. Fyrsti áfangi við jarðavinnu er í gangi. Verið er að fylla í jarðvegspúða undir sökkla og gert er ráð fyrir að því ljúki fyrir jól. Útboðsgögn eru í vinnslu og gert er ráð fyrir að hægt sé að bjóða út burðarvirki hússins fljólega eftir áramót.
Framkvæmda- og eignanefnd - 9. fundur - 02.02.2026
Tómas Haukur fór yfir stöðu framkvæmda vegna byggingu á leikskóla á Hellu.
Fyrsti áfangi við jarðavinnu er á lokametrunum en hefur tafist lítillega utanaðkomandi aðstæðna. Útboðsgögn fyrir burðarvirki eru tilbúin og stefnt að útboði á næstu dögum.
Fyrsti áfangi við jarðavinnu er á lokametrunum en hefur tafist lítillega utanaðkomandi aðstæðna. Útboðsgögn fyrir burðarvirki eru tilbúin og stefnt að útboði á næstu dögum.
Framkvæmda- og eignanefnd - 10. fundur - 10.03.2026
Tómas Haukur fór yfir stöðu framkvæmda vegna byggingu á leikskóla á Hellu.
Lögð fram niðurstaða útboðs fyrir burðarvirki leikskólans. Lagt til að ganga að tilboði Steypustöðvarinnar sem lægstbjóðanda að fjárhæð kr. 366.732.289 sem er um 3% yfir kostnaðaráætlun. Sveitarstjóra falið að ganga frá samningi við lægstbjóðanda. Miðað er við að verkþætti Steypustöðvarinnar verði lokið í lok ágúst.

Framkvæmda- og eignanefnd - 11. fundur - 27.04.2026
Tómas Haukur fór yfir stöðu framkvæmda vegna byggingu á leikskóla á Hellu.
Framleiðsla á steyptum einingum er hafin og gert ráð fyrir að reisingu burðarvirkis verði lokið í byrjun september. Áætlað er að húsinu verði lokað með gluggum og þaki fyrir áramót. Gert er ráð fyrir hægt verði að taka húsið í notkun um áramótin 2027/2028.

Framkvæmda- og eignanefnd - 1. fundur - 22.07.2026
Farið yfir stöðu framkvæmda.
Framkvæmdum við sökkla er lokið og reising eininga í 1. hluta er hafin.
Forstöðumanni þjónustumiðstöðvar er falið að kalla eftir verðum í glugga, hurðir og þakfrágang og leggja fram á næsta fundi nefndarinnar.
Stefnt er að því að húsið verði fokhelt um næstu áramót.
Forstöðumanni þjónustumiðstöðvar er falið að kalla eftir verðum í glugga, hurðir og þakfrágang og leggja fram á næsta fundi nefndarinnar.
Stefnt er að því að húsið verði fokhelt um næstu áramót.
Framkvæmda- og eignanefnd - 2. fundur - 21.09.2026
Lagt fram minnisblað um stöðu framkvæmda við nýbyggingu leikskóla frá forstöðumanni eigna- og framkvæmdasviðs. Unnið er að reisingu burðarvirkis nýs leikskóla og eru áætluð verklok í lok október 2026. Í framhaldi af því verður húsinu lokað.
Áætlaður framkvæmdakostnaður leikskóla er 1410 m.kr. eða um 920.000 kr/m2. Það er fyrir utan lóðafrágang. Gengið var til samninga við Steypustöðina um framleiðslu og reisingu burðarvirkis og Stórverk um jarðvinnu og lagnir í grunni.
Gert var ráð fyrir 760 m.kr. á fjárfestingaráætlun þessa árs í leik- og grunnskóla. Ljóst er að auki þurfi við fjárheimildir í fjárfestingaráætlun ársins ef ljúka á við þær framkvæmdir sem stefnt var að.

Lagt er til að hefja vinnu við fullnaðarhönnun á Leikskólanum Heklukoti ásamt verkfræðihönnun og að málinu verði vísað til Byggðaráðs til frekari úrvinnslu.
Samþykkt.