Málsnúmer 2402060

Vakta málsnúmer

Sorpstöð Rangárvallasýslu bs - 234. fundur - 26.02.2024

Farið yfir ýmis rekstrarmál
Lagt fram minnisblað frá framkvæmdastjóra. Framkvæmdastjóri fór yfir ýmis mál úr daglegum rekstri. Reksturinn gengur með ágætum og er í jafnvægi.

Sorpstöð Rangárvallasýslu bs - 235. fundur - 08.04.2024

Farið yfir ýmis rekstrarmál
Einar Bárðarson framkvæmdastjóri fór yfir rekstrarmál samkvæmt fyrirliggjandi minnisblaði. Reksturinn er í jafnvægi en umsvif á Strönd eru að aukast miðað við sama tímabil árið 2023.

Sorpstöð Rangárvallasýslu bs - 237. fundur - 21.05.2024

Farið yfir ýmis rekstrarmál
Framkvæmdastjóri fór yfir ýmis mál tengdum rekstri SOR. Áhyggjuefni er að flokkun heimilisúrgangs hefur farið versnandi og voru ræddar leiðir til úrbóta eins og frekari kynning. Gerð var verðkönnun varðandi afsetningu á málmum og tengdum efnum og var tilboð frá Hringrás hagstæðast og er framkvæmdastjóra falið að vinna að samningi með fyrirvara um samþykki stjórnar.

Sorpstöð Rangárvallasýslu bs - 238. fundur - 10.06.2024

Farið yfir ýmis rekstrarmál
Framkvæmdastjóri fór yfir ýmis mál tengdum daglegum rekstri SOR. Sumarið er sá árstími sem mesta álagið er á Strönd og sumarstarfsmaður er væntanlegur á næstu dögum. Einar sótti fund 31. maí sl. ásamt formanni Sorpstöðvar Suðurlands á vegum sorpsamlaga á Suðurvesturhorninu þar sem Einar kynnti starfsemi SOR.

Sorpstöð Rangárvallasýslu bs - 239. fundur - 23.09.2024

Farið yfir ýmis rekstrarmál
Framkvæmdastjóri leggur fram minnisblað um ýmis mál tengdum rekstri SOR.

Daglegur rekstur hefur gengið ágætlega það sem af er ári. Álag á starfsemina hefur aukist mikið og telur framkvæmdastjóri Sorpstöðina undirmannaða eins og stendur. Framkvæmdastjóra ásamt formanni stjórnar falið að fara yfir breytingar á starfssemi Sorpstöðvarinnar, þróun síðustu ára, stöðugildi og endurskoða starfsmannaþörf hjá Sorpstöðinni með tilliti til aukinnar flokkunar og vinnslu á Strönd.

Sorpstöð Rangárvallasýslu bs - 241. fundur - 20.01.2025

Upplýsingar úr daglegum rekstri lagðar fram til kynningar
Framkvæmdastjóri leggur fram minnisblað um ýmis mál tengdum rekstri SOR.

Daglegur rekstur gengur með ágætum þrátt fyrir kostnaðarsamar bilanir í búnaði. Starfsemin gengur ágætlega og er unnið í að pakka og undirbúa uppsafnaðan úrgang til flutninga frá Strönd.
Mikið verk er fyrir höndum enda árið 2024 mjög annasamt og safnaðist upp úrgangur til frekari vinnslu á Strönd.