Málsnúmer 2402068
Vakta málsnúmerMarkaðs-, menningar- og jafnréttismálanefnd - 6. fundur - 08.05.2024
Farið yfir skipulag Töðugjalda 2024.
Farið yfir skipulag og markaðs- og kynningafulltrúa falið að halda áfram með skipulag.
Markaðs-, menningar- og jafnréttismálanefnd - 7. fundur - 04.06.2024
Farið yfir skipulag og undirbúning Töðugjalda 2024.
Lagt til að kynna göturnar sem koma að undirbúningi töðugjalda á 17. júní og boða í kjölfarið til fundar til að hefja undirbúning.
Nefndin ákveður að kosta Leikhópinn Lottu 18. ágúst nk. - frítt inn fyrir íbúa sveitarfélagsins.

Markaðs-, menningar- og jafnréttismálanefnd - 8. fundur - 01.08.2024
Farið yfir skipulag Töðugjalda 2024.
Töðugjaldabæklingur kynntur fyrir nefndinni og hann samþykktur samhljóða til útgáfu.
Töðugjaldabæklingur kynntur fyrir nefndinni og hann samþykktur samhljóða til útgáfu.
Markaðs-, menningar- og jafnréttismálanefnd - 9. fundur - 17.09.2024
Farið yfir viðburðaskýrslu Töðugjalda 2024.
Farið yfir viðburðaskýrslu Töðugjalda 2024.
Litaskipting hverfa rædd, einkum m.t.t. svart/hvíta hverfisins. Undirskriftalisti íbúa í svart/hvíta hverfinu gegn breytingu yfir í svart/hvítt tekinn til umræðu. Lagt til að litir verði gefnir frjálsir í viðkomandi hverfi, þau sem vilja halda í græna/appelsínugula geri það en þau sem vilja fara yfir í svart/hvítt geri það. Tekið skal fram að áður en ákvörðun um skiptingu var tekin var óskað eftir samráði við íbúa. Haldið verði í hverfaskiptinguna sem var ákveðin þegar kemur að skipulagi.
Samþykkt samhljóða
Skipulag töðugjalda rætt og markaðs- og kynningafulltrúa falið að vinna skipulagið áfram