Málsnúmer 2402070

Vakta málsnúmer

Markaðs-, menningar- og jafnréttismálanefnd - 5. fundur - 06.03.2024

Farið yfir skipulag menningarstyrks 2024.

Markaðs- og kynningafulltrúa falið að auglýsa eftir umsóknum í fyrri úthlutun með umsóknarfrest til 30. apríl 2024.
Fyrri úthlutun verður 17. júní og seinni á Töðugjöldum 2024.

Samþykkt samhljóða

Markaðs-, menningar- og jafnréttismálanefnd - 6. fundur - 08.05.2024

Alls bárust 6 umsóknir í fyrri úthlutun Menningarsjóðs Rangárþings ytra 2024.

Sótt var um styrk fyrir sex verkefnum að upphæð alls 1.166.572 en 250.000 eru til úthlutunar að þessu sinni.

Nefndin þakkar umsækjendum fyrir áhugaverðar umsóknir.

Nefndin fór yfir umsóknirnar og hefur tekið ákvörðun um úthlutun. Nefndin felur markaðs- og kynningafulltrúa að ganga frá greinargerðum með rökstuðningi fyrir hverja umsókn og að hafa samband við alla umsækjendur varðandi niðurstöðu.

Niðurstaðan verður tilkynnt opinberlega þegar haft hefur verið samband við alla umsækjendur og styrkurinn verður svo formlega afhentur styrkhöfum á 17. júní næstkomandi.

Samþykkt samhljóða

Markaðs-, menningar- og jafnréttismálanefnd - 7. fundur - 04.06.2024

Styrkur sem Leikfélag Rangæinga fékk árið 2023 færist milli ára og greiðist út 2024.
Fyrri úthlutun fer formlega fram 17. júní nk. en búið er að gera styrkhöfum viðvart.
Styrkþegar í fyrri úthlutun eru:
- Raddir í Rangárþingi: Rokkveisla - kr. 200.000
- „Kríukroppur“ - einleikur Birtu Sólveigar Söring Þórisdóttur - 50.000