Málsnúmer 2404137

Vakta málsnúmer

Byggingarnefnd um uppbyggingu á skólahúsnæði á Hellu - 10. fundur - 15.04.2024

Hermann Ólafsson kom á fundinn á Teams.

Jóhann G Jóhannsson sat þennan fund.
Hermann Ólafsson fer yfir hönnun og uppbyggigu á íþróttasvæði á Hellu.
Nefndin telur að hönnunin sé tilbúin í grófum dráttum og svæðið tilbúið til að byrja jarðvinnu.
Stefnt er að kynna fyrir íþróttafélögum í sveitarfélaginu lokadrög sem fyrst.

Byggingarnefnd um uppbyggingu á skólahúsnæði á Hellu - 11. fundur - 01.07.2024

Farið var yfir stöðu varðandi næstu skref varðandi vinnu við uppbyggingu vallarins.
Undirbúningur undir fergingu fer í gang á næstu dögum.
THT upplýsir að verið er að vinna verðkönnun á burðarlagi og fergingu.
Gert er ráð fyrir að þeirri vinnu verði lokið seinnipartinn í september.
Stefnt er að því að völlurinn verði tekinn í notkun um mitt sumar 2025.

Framkvæmda- og eignanefnd - 2. fundur - 28.04.2025

Farið yfir stöðu vinnu við gervigrasvöll.
Tómas Haukur fór yfir stöðu framkvæmda við gervigrasvölinn á Hellu. Búið er að bjóða út tvær mismunandi útfærslur á gervigrasi á völlinn og er útboðsfrestur til 13. maí. Fyrir liggur að hefja vinnu við lokafrágang jarð- og lagnavinnu eins fljótt og kostur er. Stefnt er að því að taka völlinn í notkun á Töðugjöldum í sumar.

Byggðarráð Rangárþings ytra - 38. fundur - 28.05.2025

Tilboð í gervigras.
Lagt fram minnisblað og mat á tilboðum frá VSÓ ráðgjöf varðandi útboð á gervigrasi á knattspyrnuvöll á Hellu

Lagt er til að velja lausn 2 sem er 40-50mm gervigras með fjaðurlagi og að semja við lægstbjóðanda sem er Laiderz að fjárhæð kr. 87.377.706. Tilboðið rúmast innan kostnaðaráætlunar. Jafnframt verði sveitarstjóra falið að undirita samning við lægstbjóðanda.

Samþykkt samhljóða.

Framkvæmda- og eignanefnd - 3. fundur - 23.06.2025

Tómas Haukur fór yfir stöðu framkvæmda við gervigrasvöllinn á Hellu. Verið er að ganga frá samningi við Laiderz um lagningu á 40-50mm gervigras með fjaðurlagi sem var lægstbjóðandi í verkið.

Vinna við jarðvinnu er hafin. Lokið er við að fjarlægja fergingu af vellinu og lagnavinna hafin. Gert er ráð fyrir að vinna við lagningu gervigrassins hefjist eftir miðjan júlí.

Framkvæmda- og eignanefnd - 4. fundur - 03.09.2025

Grefigrasvöllur
Tómas Haukur fór yfir stöðu framkvæmda við gervigrasvöllinn á Hellu.

Vinna við jarð- og lagnavinnu er lokið. Tafir á afhendingu vökvunarkerfis hefur ollið seinkun á verkinu. Gert er ráð fyrir að vinna við lagningu gervigrassins hefjist 10. september og áætluð verklok eru seinni hluta þessa mánaðar.

Samþykkt að komið verði upp bráðabrigðalýsingu við völlinn svo sem hann nýtist sem best í haust og vetur.

Framkvæmda- og eignanefnd - 5. fundur - 06.10.2025

Tómas Haukur fór yfir stöðu framkvæmda við gervigrasvöllinn á Hellu.

Vinna við lagningu gervigrassins er í fullum gangi en lokafrágangur er háður verðurskilyrðum.

Framkvæmda- og eignanefnd - 6. fundur - 29.10.2025

Tómas Haukur fór yfir stöðu framkvæmda við gervigrasvöllinn á Hellu.

Framkvæmda- og eignanefnd - 8. fundur - 15.12.2025

Tómas Haukur fór yfir stöðu framkvæmda við gervigrasvöllinn á Hellu. Rætt var um tímasetningar á lýsingu vallarins. Lýsing verður á vellinum frá 9:00-12:00 og 15:00-20:00 nú í svartasta skammdeginu. Gert verður ráð fyrir því að stýring á lýsingu verði í íþróttamiðstöðinni á Hellu. Varðandi aðstöðumál við völlinn er gert ráð fyrir að lausar kennslustofur sem eru við völlinn verði nýttar fyrir búnings- og sturtuaðstöðu og verði tilbúin í byrjun sumars. Þá verður komið fyrir aðstöðu til bráðabrigða fyrir veitingasölu og áhaldageymslu. Þá þarf í samráði við KFR að koma upp varamannaskýlum við völlinn.

Framkvæmda- og eignanefnd - 9. fundur - 02.02.2026

Tómas Haukur fór yfir stöðu framkvæmda við gervigrasvöllinn á Hellu.

Verið er að vinna að betrumbótum á vellinum og laga yfirborð hans.
Þá er byrjuð vinna við undirbúning við að klæða utan á lausar kennslustofur sem eru við völlinn og nýttar verða fyrir búnings- og sturtuaðstöðu.

Framkvæmda- og eignanefnd - 10. fundur - 10.03.2026

Tómas Haukur fór yfir stöðu framkvæmda við gervigrasvöllinn á Hellu.

Búið er að klæða utan á lausar kennslustofur við völlinn sem nýttar verða fyrir búnings- og sturtuaðstöðu. Farið verður í innanhússframkvæmdir þegar starfsemi skólans er flutt úr húsnæðinu. Með vorinu verður farið í að bæta innfyllingu fyrir FIFA úttekt og annan yfirborðsfrágang á svæðinu í kringum völlinn.

Framkvæmda- og eignanefnd - 11. fundur - 27.04.2026

Tómas Haukur fór yfir stöðu framkvæmda við gervigrasvöllinn á Hellu.

Gert er ráð fyrir að hægt verði að hefja innahússframkvæmdir við búnings- og sturtuaðstöðu í aðstöðuhúsi við völlinn um miðjan maí. Verið er að bíða eftir viðbótar fyllingarefni og vinnu að lokafrágangi fyrir FIFA úttekt á vellinum. Rætt var um hvaða möguleikar eru í boði við upphitun vallarins.

Framkvæmda- og eignanefnd - 1. fundur - 22.07.2026

Farið yfir tillögur að staðsetningu á frjálsíþróttavelli og áframhaldandi uppbyggingu á íþrótta- og útivistarsvæði.
Nefndin leggur til að farið verði í deiliskipulagsvinnu á afmörkuðu svæði fyrir íþrótta- og útivistarsvæði.

Sveitarstjóra falið að boða til fundar með Heilsu-, íþrótta- og tómstundanefnd og Framkvæmda- eignanefnd ásamt hönnuði þar sem endanleg útfærsla svæðisins verði lögð til.

Framkvæmda- og eignanefnd - 2. fundur - 21.09.2026

Töluvert hefur verið unnið í umhverfi íþróttavallar og gerðar úrbætur fyrir frjálsar íþróttir þar sem útbúin hafa verið kastsvæði ásamt því að vinna með að tyrfa svæðið og snyrta.

Einnig er búið að smíða tvö vegleg varamanna skýli fyrir knattspyrnuvöllinn.

Knattspyrnuvöllurinn var tekinn út af óháðum skoðunaraðila og kom sú úttekt vel út.

Lausu kennslustofurnar sem notaðar voru fyrir verknám og myndlist losnuðu í vor. Þar hefur nú verið byrjað að innrétta búningsklefa og snyrtingar fyrir íþróttasvæðið. Búið er að klæða húsið að utan. Millivegur eru komnir en eftir er að ganga frá sturtum, mála og ganga frá gólfefnum. Búð er að leggja frárennsli utan með húsi fyrir sturtur og snyrtingar.

Kallað var eftir upplýsingum frá verktaka gervigrasvallarins varðandi áhrif vetraraðstæðna á völlinn. Samkvæmt skriflegu svari verktaka eru fæstir vellir af þessari gerð upphitaðir og það þá gert til þess að auka nýtingu en hefur ekki áhrif á endingu og gæði.

Gervigrasvöllurinn hefur staðist allar úttektir og fengið alþjóðlega FIFA vottun.

Hitalagnir undir vellinum voru vatnstæmdar. Áfram verða skoðaðar mögulegar leiðir til að koma hitun á völlinn.

Fyrir liggur tillaga að deiliskipulagi frjálsíþróttavallar í landi Helluvaðs. Deiliskipulagið fer í formlegt deiliskipulagsferli á næstu vikum.

Lagt fram til kynningar.