Málsnúmer 2405012

Vakta málsnúmer

Skipulags- og umferðarnefnd - 26. fundur - 06.06.2024

Eigendur lóðarinnar Giljanes L165242 óska eftir heimild til að leggja fram tillögu að deiliskipulagi fyrir lóð sína. Áform eru um byggingu frístundahúss, gestahúss, bílskúrs og lítils gróðurhúss. Lóðin er á skilgreindu landbúnaðarlandi skv. aðalskipulagi Rangárþings ytra 2016-2028.
Skipulagsnefnd samþykkir að veita heimild til deiliskipulagsgerðar og leggur til að fallið verði frá kynningu lýsingar þar sem skipulagsáætlun samræmist stefnu aðalskipulagsins.

Skipulags- og umferðarnefnd - 32. fundur - 07.11.2024

Eigendur lóðarinnar Giljanes L165242 hafa fengið heimild til að leggja fram tillögu að deiliskipulagi fyrir lóð sína. Áform eru um byggingu frístundahúss, gestahúss, bílskúrs og lítils gróðurhúss. Lóðin er á skilgreindu landbúnaðarlandi skv. aðalskipulagi Rangárþings ytra 2016-2028. Skipulagsgögn frá Landhönnun dags. 30.10.2024.
Skipulags- og umferðarnefnd samþykkir framlagða tillögu og leggur til að hún verði auglýst skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Nefndin vill árétta að lóðarhafar í kring samnýti vegtengingar eins og kostur er en Vegagerðin þarf að samþykkja fyrirhugaða tengingu við Hagabrautina.

Skipulags- og umferðarnefnd - 36. fundur - 16.01.2025

Eigendur lóðarinnar Giljanes L165242 hafa lagt fram tillögu að deiliskipulagi fyrir lóð sína. Áform eru um byggingu frístundahúss, gestahúss, bílskúrs og lítils gróðurhúss. Lóðin er á skilgreindu landbúnaðarlandi skv. aðalskipulagi Rangárþings ytra 2016-2028. Skipulagsgögn frá Landhönnun dags. 30.10.2024. Tillaga var auglýst frá og með 13.11.2024 til og með 1.1.2025. Umsagnir bárust frá Mílu, Umhverfisstofnun, Veitum, Landsneti, Rarik og Heilbrigðiseftirliti Suðurlands sem gerðu engar athugasemdir; frá Vegagerðinni sem gerði engar athugasemdir en ítrekar að vegtenging verði sameiginleg með Hallstúni Spildu og frá brunavörnum Rangárvallasýslu sem gerði engar athugasemdir en bendir á að gróðursetning trjágróðurs við aðkomuveg megi ekki hindra aðkomu slökkvibíla.
Skipulags- og umferðarnefnd frestar erindinu

Skipulags- og umferðarnefnd - 45. fundur - 05.06.2025

Eigendur lóðarinnar Giljanes L165242 hafa lagt fram tillögu að deiliskipulagi fyrir lóð sína. Áform eru um byggingu frístundahúss, gestahúss, bílskúrs og lítils gróðurhúss. Lóðin er á skilgreindu landbúnaðarlandi skv. aðalskipulagi Rangárþings ytra 2016-2028. Skipulagsgögn frá Landhönnun dags. 30.10.2024. Tillaga var auglýst frá og með 13.11.2024 til og með 1.1.2025. Umsagnir bárust frá Mílu, Umhverfisstofnun, Veitum, Landsneti, Rarik og Heilbrigðiseftirliti Suðurlands sem gerðu engar athugasemdir; frá Vegagerðinni sem gerði engar athugasemdir en ítrekar að vegtenging verði sameiginleg með Hallstúni Spildu og frá brunavörnum Rangárvallasýslu sem gerði engar athugasemdir en bendir á að gróðursetning trjágróðurs við aðkomuveg megi ekki hindra aðkomu slökkvibíla. Afgreiðslu var frestað á síðasta fundi þar sem ekki lágu fyrir uppfærð gögn. Lögð eru fram uppfærð gögn þar sem gert er ráð fyrir samnýtingu lóðarinnar á tengingu við Hagabrautina í samræmi við kröfur Vegagerðarinnar.
Skipulags- og umferðarnefnd hefur farið yfir fram komnar athugasemdir. Nefndin telur að búið sé að taka tillit til fram kominna athugasemda í fyrirliggjandi tillögu og leggur til að tillagan verði send Skipulagsstofnun til endanlegrar afgreiðslu í samræmi við 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Þar sem breytingar voru gerðar á fyrirhugaðri aðkomu frá Hagabraut frá auglýstri tillögu telur nefndin rétt að framlögð tillaga verði send til umsagnar Vegagerðarinnar áður en af sendingu til Skipulagstofnunar verður.

Skipulags- og umferðarnefnd - 47. fundur - 08.08.2025

Eigendur lóðarinnar Giljanes L165242 hafa lagt fram tillögu að deiliskipulagi fyrir lóð sína. Áform eru um byggingu frístundahúss, gestahúss, bílskúrs og lítils gróðurhúss. Lóðin er á skilgreindu landbúnaðarlandi skv. aðalskipulagi Rangárþings ytra 2016-2028. Lögð eru fram uppfærð gögn eftir auglýsingu tillögunnar þar sem vegtengingar að Hallstúni spildu og Giljanesi eru samþykktar með fyrirvara um að núverandi túntenging að Lýtingsstöðum landi 1 L223208 verði ekki samþykkt fyrir aðra starfsemi.
Dregist hefur að afgreiða tillöguna þar sem ekki náðist samkomulag um tengingar inná spilduna frá Hagabraut. Með samþykkt Vegagerðarinnar er litið svo á að samkomulag liggi fyrir.
Skipulags- og umferðarnefnd hefur farið yfir fram komnar umsagnir. Nefndin telur að búið sé að taka tillit til fram kominna athugasemda í fyrirliggjandi tillögu og leggur til að tillagan verði send Skipulagsstofnun til endanlegrar afgreiðslu í samræmi við 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.