Málsnúmer 2408009

Vakta málsnúmer

Skipulags- og umferðarnefnd - 3. fundur - 02.07.2026

Húsnæðis- mannvirkja- og skipulagsstofnun leitar umsagna umsagnaraðila vegna tilkynninga til ákvörðunar um matsskyldu á grundvelli 20. gr. laga um umhverfismat framkvæmda og áætlana nr. 111/2021.

Afl og Orka ehf. hefur gert samning við landeiganda að Keldnalæk í Rangárþingi ytra um uppbyggingu og rekstur Tunguvirkjunar í landi Keldna. Fyrirhuguð virkjun er allt að 3 MW rennslisvirkjun.

Framkvæmdin felur meðal annars í sér byggingu inntaksmannvirkis og inntakslóns, sem verður um 3,5

ha. að stærð, auk um 1,4 km langrar aðrennslispípu frá inntaki að stöðvarhúsi. Jafnframt er áætlað að leggja um 3,5 km af vegslóðum innan framkvæmdarsvæðis. Áætluð heildarstærð framkvæmdasvæðisins er talin nema um 25 ha. Á mynd 1.1 má sjá staðsetningu framkvæmdasvæðis við ármót Keldnalækjar og Eystri-Rangá.

Áður en lengra er haldið með undirbúning óskar Afl og Orka ehf. hér með eftir ákvörðun Húsnæðis- og

mannvirkja- og skipulagsstofnunar (HMS) um það hvort framkvæmdin sem lýst er sé matsskyld skv. lögum nr. 111/2021 um umhverfismat framkvæmda og áætlana. Virkjunin telst vera í flokki B samkvæmt skilgreiningu í viðauka 1 í fyrrgreindum lögum og er því tilkynningaskyld til HMS, sem metur framkvæmdina á grundvelli viðmiðana sem lýst er í viðauka 2 í þessum sömu lögum.
Skipulags- og umferðarnefnd hefur farið yfir matsskyldufyrirspurn vegna fyrirhugaðrar Tunguvirkjunar í Keldnalæk og þau gögn sem lögð hafa verið fram með erindinu.

Nefndin vísar til fyrri bókunar sinnar þar sem bent var á veruleg álitamál vegna menningarminja, sérstakrar verndar Tungufoss og Krókahrauns, áhrifa á vatnshlot og neysluvatn, auk verndargildis lífríkis og fuglalífs á svæðinu.

Þrátt fyrir að frekari rannsóknargögn hafi nú verið lögð fram telur nefndin að ekki hafi verið leyst með fullnægjandi hætti úr öllum þeim álitaefnum sem áður voru tilgreind. Sérstaklega liggur ekki fyrir endanleg afstaða Minjastofnunar Íslands til áhrifa framkvæmdarinnar á fornleifar, fullnægjandi og samræmt mat á áhrifum á vatnshlot og neysluvatn né skýrt valkostamat. Þá er ósamræmi í gögnum um umfang framkvæmdarinnar, meðal annars varðandi stærð inntakslóns og lengd vegslóða, og þær forsendur sem einstakar sérfræðirannsóknir byggja á.

Með hliðsjón af eðli og umfangi framkvæmdarinnar, viðkvæmni framkvæmdarsvæðisins og viðmiðum 2. viðauka laga nr. 111/2021 telur nefndin að ekki sé unnt að útiloka að framkvæmdin geti haft í för með sér umtalsverð umhverfisáhrif.

Skipulags- og umferðarnefnd mælir því með að fyrirhuguð Tunguvirkjun verði háð umhverfismati samkvæmt lögum nr. 111/2021. Nefndin tekur með þessari umsögn ekki endanlega afstöðu til heimildar framkvæmdarinnar í skipulagi.

Umhverfis-, hálendis- og samgöngunefnd - 1. fundur - 04.08.2026

Erla Björk frá Afli og orku ehf fór yfir áherslur og áform um Tunguvirkjun.
Húsnæðis- mannvirkja- og skipulagsstofnun leitar umsagna umsagnaraðila vegna tilkynninga til ákvörðunar um matsskyldu á grundvelli 20. gr. laga um umhverfismat framkvæmda og áætlana nr. 111/2021. Afl og Orka ehf. hefur gert samning við landeiganda að Keldnalæk í Rangárþingi ytra um uppbyggingu og rekstur Tunguvirkjunar í landi Keldna. Fyrirhuguð virkjun er allt að 3 MW rennslisvirkjun. Framkvæmdin felur meðal annars í sér byggingu inntaksmannvirkis og inntakslóns, sem verður um 3,5 ha. að stærð, auk um 1,4 km langrar aðrennslispípu frá inntaki að stöðvarhúsi. Jafnframt er áætlað að leggja um 3,5 km af vegslóðum innan framkvæmdarsvæðis. Áætluð heildarstærð framkvæmdasvæðisins er talin nema um 25 ha. Á mynd 1.1 má sjá staðsetningu framkvæmdasvæðis við ármót Keldnalækjar og Eystri-Rangá. Áður en lengra er haldið með undirbúning óskar Afl og Orka ehf. hér með eftir ákvörðun Húsnæðis- og mannvirkja- og skipulagsstofnunar (HMS) um það hvort framkvæmdin sem lýst er sé matsskyld skv. lögum nr. 111/2021 um umhverfismat framkvæmda og áætlana. Virkjunin telst vera í flokki B samkvæmt skilgreiningu í viðauka 1 í fyrrgreindum lögum og er því tilkynningaskyld til HMS, sem metur framkvæmdina á grundvelli viðmiðana sem lýst er í viðauka 2 í þessum sömu lögum.
Umhverfis-, hálendis- og samgöngunefnd þakkar fyrir kynningu Erlu. Tunguvirkjun er metnaðarfullt verkefni sem ætlað er til að styðja við raforkuframleiðslu í Rangárþingi ytra og Rangárþingi eystra.

Nefndin tekur undir bókun Skipulags- og umferðarnefndar en eins og segir þar “Með hliðsjón af eðli og umfangi framkvæmdarinnar, viðkvæmni framkvæmdarsvæðisins og viðmiðum 2. viðauka laga nr. 111/2021 telur nefndin að ekki sé unnt að útiloka að framkvæmdin geti haft í för með sér umtalsverð umhverfisáhrif.
Mörgum spurningum hefur verið svarað frá fundi skipulags- og umferðarnefndar, ekki liggur fyrir áhrifamat vegna vatnshlota.

Meirihluti Umhverfis-, hálendis- og samgöngunefndar leggur til við sveitarstjórn að Tunguvirkjun sæti umhverfismati í samræmi við lög nr. 111/2021.

Sævar Jónsson telur umhverfisáhrif sáralítil og telur því enga þörf á að framkvæmdin skuli háð umhverfismati.

Erlu Björk þökkuð góð yfirferð þegar hún yfirgaf fundinn.

Sveitarstjórn Rangárþings ytra - 3. fundur - 12.08.2026

Óskað var eftir fresti til 17. ágúst til þess að skila umsögn til HMS og hefur sú beiðni verið staðfest. Byggðarráð óskar eftir umsögn Umhverfis- og hálendisnefndar. Málið verður tekið fyrir að nýju á næsta reglulega fundi sveitarstjórnar þann 12. ágúst.
Sveitarstjórn samþykkir fyrirliggjandi umsögn Rangárþings ytra vegna tilkynningar um Tunguvirkjun til ákvörðunar um matsskyldu og felur sveitarstjóra að senda hana til Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar.

Sveitarstjórn vísar sérstaklega til bókunar Skipulags- og umferðarnefndar frá 2. júlí 2026 og bókunar meirihluta Umhverfis-, hálendis- og samgöngunefndar frá 4. ágúst 2026. Í báðum bókunum er komist að þeirri niðurstöðu að með hliðsjón af eðli og umfangi framkvæmdarinnar, viðkvæmni framkvæmdarsvæðisins og þeim álitaefnum sem uppi eru, m.a. varðandi vatnshlot og neysluvatn, menningarminjar, náttúrufar og aðra umhverfisþætti, sé ekki unnt að útiloka umtalsverð umhverfisáhrif. Báðar nefndir mæla því með að Tunguvirkjun sæti umhverfismati samkvæmt lögum nr. 111/2021.

Sveitarstjórn tekur undir þá niðurstöðu og telur rétt, með hliðsjón af fyrirliggjandi gögnum og umsögnum fagstofnana, að framkvæmdin verði háð umhverfismati samkvæmt lögum nr. 111/2021.

Meðfylgjandi er rökstuðningur fyrir afstöðu sveitarstjórnar til málsins.

ÞS tók til máls

Samþykkt með fjórum atkvæðum EGV, MHG, ESS og VMÞ.
IPG, GA, ÞS sitja hjá.

Bókun D-lista
Undirritaðir telja að miðað við fyrirliggjandi gögn sé ekki ástæða til að kveða upp úr um hvort umrædd framkvæmd þurfi að fara í mat á umhverfisáhrifum. Ábyrgð og ákvarðanataka fyrir slíku liggur hjá HMS og því rétt að stofnunin taki ákvörðun um slíkt út frá faglegum gögnum en ekki út frá pólitískri afstöðu sveitarstjórnar. Því sitja undirritaðir hjá við afgreiðsluna.
IPG, GA, ÞS