Málsnúmer 2408032

Vakta málsnúmer

Byggðarráð Rangárþings ytra - 29. fundur - 28.08.2024

Á fundinn mætir Tómas Haukur Tómasson forstöðumaður eigna og framkvæmdasviðs og fór yfir viðhalds- og framkvæmdaáætlun 2024.

Byggðarráð þakkar Tómasi Hauki fyrir góða yfirferð.

Byggðarráð Rangárþings ytra - 30. fundur - 25.09.2024

Á fundinn mætir Tómas Haukur Tómasson forstöðumaður eigna og framkvæmdasviðs og fór yfir viðhalds- og framkvæmdaáætlun 2024 og drög að framkvæmdaáætlun 2025. Að auki situr undir þessum lið Þórunn Dís Þórunnardóttir.

Byggðarráð þakkar Tómasi Hauki fyrir góða yfirferð.

Framkvæmda- og eignanefnd - 1. fundur - 10.02.2025

Tómas Haukur fór yfir stöðu viðhalds og framkvæmdamála vegna ársins 2025.

Vegna fyrirhugaðra endurbóta á Freyvangi þá leggur nefndin til að skipulags- og umferðarnefnd fari yfir umferðaröryggismál varðandi gangandi vegfarendur frá Þingskálum að nyrðri enda Freyvangs.

Samþykkt sammála.

Skipulags- og umferðarnefnd - 38. fundur - 20.02.2025

Vegna fyrirhugaðra endurbóta á Freyvangi þá leggur Framvkæmda- og eignanefnd til að skipulags- og umferðarnefnd fari yfir umferðaröryggismál varðandi gangandi vegfarendur frá Þingskálum að nyrðri enda Freyvangs. Samþykkt á fundi nefndarinnar þann 10.2.2025.
Skipulags- og umferðarnefnd leggur til að kannað verði meðal íbúa í Heiðvangi og Freyvangi hvort og með hvaða hætti íbúar vilja auka umferðaöryggi í götunum. Í þeirri könnun verði spurt sérstaklega hvort og hvernig íbúar í nyrðri hluta Freyvangs vilja standa að aðgengi gangandi vegfarenda í þeim hluta götunnar þar sem ekki er gangstétt. Einnig verði kynnt áform um að leggja gangstétt norðan Þingskála að skólasvæði í tengslum við gangstíg á milli Freyvangs 14 og 16. Skipulagsfulltrúa og formanni nefndarinnar verði falið að vinna málið áfram og setja grenndarkynningu af stað.

Framkvæmda- og eignanefnd - 2. fundur - 28.04.2025

Tómas Haukur fór yfir stöðu viðhalds og framkvæmdamála vegna ársins 2025.
Gert er ráð fyrir að fara í eftirfarandi viðhaldsverkefni í sumar: Freyvangur yfirlögn og kantsteinar, Þrúðvangur yfirlögn, götulýsing og gangstétt að hluta, gangstígalýsing yfir hólinn, undirbygging gangstígs meðfram gamla hesthúsahverfi að Eyjasandi. Einnig er gert ráð fyrir að fara í ýmis aðkallandi viðhaldsverkefni við eldri hluta Grunnskólans á Hellu og utanhúss málningarvinnu á Heklukoti.

Þá gert ráð fyrir að fara vinna að eftirfarandi nýframkvæmdum: Malbikun Kjarröldu, gangstéttar og kantsteinar, malbikun Guðrúnartúns, kantsteinar og gangstéttar, Lyngalda malbikun. Götulýsing Sleipnisflatir og Faxaflatir, gervigrasvöllur lokafrágangur, grunnskólinn viðbygging 2.áfangi, Leikskólinn Heklukot hönnun og jarðvinna, opin svæði, Fossabrekkur og hjóla- og göngustígur með þjóðvegi innan Hellu, fráveitulögn að nýrri hreinsistöð. Í áætlun Húsakynna bs. er gert ráð fyrir framkvæmdum á Laugalandi.

Samþykkt sammála.

Skipulags- og umferðarnefnd - 43. fundur - 07.05.2025

Á fundi skipulags- og umferðarnefndar 20. febrúar 2025 var lögð fram tillaga að áformum sveitarfélagsins um aukið umferðaröryggi í tengslum við aðgengi að skólasvæði á Hellu. Áformin voru grenndarkynnt frá og með 28. mars til og með 27. apríl 2025. Barst ein athugasemd.
Skipulags- og umferðarnefnd frestar afgreiðslu erindisins.

Framkvæmda- og eignanefnd - 3. fundur - 23.06.2025

Tómas Haukur fór yfir stöðu viðhalds og framkvæmdamála vegna ársins 2025.

Lögð fram ábending frá Dögg Þrastardóttur varðandi ástand leikvalla. Nefndin þakkar fyrir erindið og felur sveitarstjóra að svara erindinu.

Samþykkt sammála.

Framkvæmda- og eignanefnd - 4. fundur - 03.09.2025

Tómas Haukur fór yfir stöðu viðhalds og framkvæmdamála vegna ársins 2025. Framkvæmdir og viðhald hafa gengið að mestu skv. áætlun.

Framkvæmda- og eignanefnd - 5. fundur - 06.10.2025

Áætlun 2025-2028
Tómas Haukur fór yfir stöðu viðhalds og framkvæmdamála vegna ársins 2025. Breytingar verða á framkvæmdum í Freyvangi vegna óhjákvæmilegra veitnu- og lagnaframkvæmda og þarf því að freksta framkvæmdum við yfirlögn til vorsins 2026. Framkvæmdum við Þrúðvang þarf að fresta til vorsins 2026 vegna vinnu við hverfisskipulag.

Rætt var um helstu framkvæmdar- og viðhaldsverkefni áranna 2026-2028 og forstöðumanni framkvæmda- og eignasviðs falið að vinna tillögur fyrir næsta fund nefndarinnar.

Samþykkt samhljóða.

Framkvæmda- og eignanefnd - 6. fundur - 29.10.2025

Tómas Haukur fór yfir stöðu viðhalds og framkvæmdamála vegna ársins 2025.

Rætt var um helstu framkvæmdar- og viðhaldsverkefni áranna 2026-2028. Unnið verði áfram með þær hugmyndir sem verða ræddar á vinnufundi byggðarráðs næstkomandi mánudag.

Framkvæmda- og eignanefnd - 7. fundur - 17.11.2025

Tómas Haukur fór yfir stöðu viðhalds og framkvæmdamála vegna ársins 2025. Fram kom að altjón varð á flutningi á gólfdúk í nýju grunnskólabygginguna á Hellu sem óhjákvæmilega veldur töfum á því að hægt verði að taka 2 áfanga í notkun um næstu áramót. Á næstu dögum verður ljóst hversu miklar tafir verða og þá mun það verða kynnt sérstaklega.

Rætt var um helstu framkvæmdar- og viðhaldsverkefni áranna 2026-2028.

Framkvæmda- og eignanefnd - 8. fundur - 15.12.2025

Tómas Haukur fór yfir stöðu viðhalds- og framkvæmdamála vegna ársins 2025. Helstu verkefni sem unnið er að núna er að koma upp lýsingu á göngustíg milli Heiðvangs og Eyjasands og meðfram Sleipnis- og Faxaflötum. Dregist hefur að fá afhent götuljós fyrir hesthúsahverfið en þau eru væntanleg í vikunni. Að auki verður farið í lagfæringar á regnvatnslögnum og stígum í hluta hesthúsahverfisins. Þá er hafin vinna við áfanga 2 við fráveitulögn að nýrri staðsetningu hreinsistöðvar á Hellu.

Framkvæmda- og eignanefnd - 9. fundur - 02.02.2026

Tómas Haukur fór yfir stöðu viðhalds- og framkvæmdamála vegna ársins 2026.

Helstu verkefni sem unnið er að núna eru framkvæmdir við nýja vegtengingu vegna stækkunar Reykjagarðs og ljúka við lýsingu á göngustíg milli Heiðvangs og Eyjasands.

Framkvæmda- og eignanefnd - 10. fundur - 10.03.2026

Tómas Haukur fór yfir stöðu viðhalds- og framkvæmdamála vegna ársins 2026.

Búið er að ráða verkefnastjóra vegna framkvæmda á Laugalandi og vinna hafin. Framkvæmdaáætlun verður lögð fram á næsta fundi nefndarinnar. Niðurstaða verðkönnunar á gatnahönnun í Bjargshverfi er væntanleg seinni partinn í mars. Undirbúningur er í gangi við að uppfæra leikvelli á Hellu og úrbætur verða gerðar í sumar. Undirbúningur er í gangi varðandi viðhald eigna og gatna. Upplýst er að verið er að vinna áfram að aðgengismálum við Fossabrekkur.

Framkvæmda- og eignanefnd - 11. fundur - 27.04.2026

Tómas Haukur fór yfir stöðu viðhalds- og framkvæmdamála vegna ársins 2026.

Fara á í malbikun á götum á Freyvangi og Þrúðvangi fyrra hluta sumars í samráði við veitufyrirtæki. Þá verður farið að vinna að gerð göngustígs og lýsingar bak við Þjónustumiðstöð að Langasandi. Þá er búið að panta glugga í viðhaldsverkefni á eldra hluta Grunnskólans á Hellu og jafnframt verður farið í viðhald á þaki núverandi bókasafns þegar flutningum og skóla líkur. Búið er að panta glugga í viðhaldsverkefni á Laugalandi og búið að klára að ráða verktaka þar að stærstum hluta. Hönnun á ákveðnum verkþáttum (loftræsting, lýsing og hljóðvist) er í gangi. Verið er að vinna að útfærslu á nýju leiksvæði í Ölduhverfi.

Framkvæmda- og eignanefnd - 1. fundur - 22.07.2026

Farið yfir stöðu viðhalds- og framkvæmdamála.

Framkvæmdir í Freyvangi hafa tafist en lögð er áhersla á að ljúka þeim sem fyrst.

Önnur verkefni eru í eðlilegum farvegi.

Framkvæmda- og eignanefnd - 2. fundur - 21.09.2026

Farið yfir stöðu fjárfestingar- og viðhaldsverkefna sem áætluð eru á árinu 2026.

Lagt til að fjármálastjóri verði boðaður á næsta fund framkvæmda- og eignanefndar þar sem farið verður yfir stöðu verkefna og endanlega fjármögnun.

Samþykkt samhljóða.

Framkvæmda- og eignanefnd - 3. fundur - 05.10.2026

Farið yfir fjárfestinga- og viðhaldsáætlun.

Sveitarstjóra falið að vinna málið áfram og leggja fram frekari gögn á næsta fundi nefndarinnar.