Málsnúmer 2411004

Vakta málsnúmer

Heilsu,- íþrótta- og tómstundanefnd - 17. fundur - 07.11.2024

Upplýsingar um notkun frístundastyrks RY
Verkefnisstjóri íþrótta- og fjölmenningarmála renndi yfir upplýsingar um notkun á frístundastyrk hjá RY.

Sveitarstjórn Rangárþings ytra - 50. fundur - 10.12.2025

Yfirlit vegna áranna 2023-2025.
Lagt fram til kynningar yfirlit frá íþrótta- og fjölmenningarfulltrúa um notkun á frístundastyrkjum í Rangárþingi ytra fyrir árin 2023-2025.

BG og MHG tóku til máls

Sveitarstjórn þakkar fyrir gott yfirlit. Óskað að teknar verði saman upplýsingar um þróun æfingagjalda á tímabilinu og þær lagðar fyrir næsta reglulega fund sveitarstjórnar.

Sveitarstjórn Rangárþings ytra - 51. fundur - 14.01.2026

Lagt fram til kynningar yfirlit frá íþrótta- og fjölmenningarfulltrúa um notkun á frístundastyrkjum í Rangárþingi ytra fyrir árin 2023-2025 og upplýsingar um þróun æfingagjalda á tímabilinu.

IPG og MHG tóku til máls.

Tekið stutt fundarhlé.

Bókun D-lista:
Fulltrúar D-lista þakka fyrir samantekin gögn. Skv. fyrirliggjandi gögnum hefur nýting á frístundastyrk aukist úr 73% frá árinu 2023 í 83% á árinu 2025 sem er jákvætt í sjálfu sér þó ekki liggi fyrir nein frekari greining á því hvers vegna 17% þeirra sem rétt eiga á styrknum nýti hann ekki, t.d. hvort sá hópur þurfi ekki á honum að halda eða sé almennt ekki að stunda neitt íþrótta- eða tómstundastarf. Eitt af þeim markmiðum sem lágu fyrir tillögunni upphaflega var að ýta undir að fleiri börn og ungmenni myndu stunda íþrótta- og tómstundastarf. Á 4. fundi sveitarstjórnar 14. september 2022 lýsti fulltrúi D-lista þeim áhyggjum að innleiðing frístundastyrkja myndi leiða til hækkunar á æfingargjöldum líkt og víða hefði raungerst. Þegar fyrirliggjandi gögn eru rýnd má sjá að þær áhyggjur voru á rökum reistar og að æfingagjöld hafa nokkuð gegnumgangandi verið að hækka allt frá því frístundastyrkir voru innleiddir, misjafnlega þó eftir greinum. Þannig hafa sem dæmi æfingargjöld fyrir 6.- 4. flokk hjá KFR hækkað um 36% á sama tíma og launavísitala hefur hækkað um 17%. Æfingagjöld í 3. flokki hafi jafnframt hækkað nokkuð umfram launavísitölu. Sambærileg dæmi má finna bæði hjá Umf. Heklu og Garpi. Eitt af markmiðum frístundastyrkja var að létta undir með heimilum til að kostnaður væri síður hamlandi fyrir þátttöku í íþrótta- og tómstundastarfi. Ljóst er að þegar æfingagjöld hækka töluvert umfram vísitölu og hækka um leið umfram frístundastyrki er ekki verið að ná þeim markmiðum. Í slíkum tilfellum er raunkostnaður á heimilin að hækka en ekki lækka eins og markmið stóðu til. Það er áhyggjuefni og vert væri að fara í nánari greiningar á þessari þróun og um leið að skoða heildstætt hvort þau markmið sem lágu fyrir í upphafi séu að nást.(IPG, EÞI, BG).

Sveitarstjórn óskar eftir fundi með fulltrúum íþróttafélaga um þróun æfingagjalda.

Sveitarstjórn Rangárþings ytra - 52. fundur - 11.02.2026

IPG tók til máls.

Bókun D-lista: Á síðasta fundi sveitarstjórnar í bókun D-lista varðandi frístundastyrki var miðað við þróun æfingagjalda frá árinu 2021 í samræmi við þau gögn sem lágu fyrir fundinum. Ef miðað er við tímabilið frá 2022-2025 eða frá því að frístundastyrkir voru innleiddir má glögglega sjá þegar vísitölur neysluverðs og launavísitala eru skoðaðar að þróun æfingagjalda hefur í allnokkrum tilfellum verið umfram vísitölur. Fulltrúar D-lista telja eðlilegt að gerð verði úttekt á því hvort frístundastyrkir hafi skilað markmiðum sínum og við þá úttekt er eðlilegt að skoðuð verði þróun æfingagjalda samhliða, enda var eitt af markmiðum að létta undir með fjölskyldum barna sem stunda íþróttir og aðrar tómstundir.(IPG, BG, ÞS)

Bókun Á-lista: Samkvæmt ákvörðun síðasta sveitarstjórnarfundar verður haldinn fundur með formönnum íþróttafélaganna þann 17. febrúar n.k. Í framhaldi af þeim fundi verður málið aftur tekið fyrir á fundi sveitarstjórnar og boða fulltrúar Á-lista frekari bókun þá, sem byggir á niðurstöðum þess fundar. (EVG, MHG, ÞDÞ, VMÞ)

Heilsu,- íþrótta- og tómstundanefnd - 3. fundur - 07.10.2026

Minnisblað um fjölgun árganga fyrir frístundastyrk.
Nefndin þakkar fyrir samantektina og óskar eftir kortlagningu á íþrótta- og tómstundarstarfi í RY á leik-, grunn-, og framhaldsskólastigi.

Heilsu,- íþrótta- og tómstundanefnd - 5. fundur - 03.11.2026

Tillaga fulltrúa D lista, breytingar á reglum um frístundastyrk:

Fulltrúar D lista í Heilsu-, íþrótta- og tómstundanefnd leggja til að nefndin samþykki að leggja til við sveitarstjórn að gerðar verði eftirfarandi breytingar á reglum Rangárþings ytra um frístundastyrk og bætt við 3.gr varðandi skilyrði:



1. Forgangur frístundastarfs innan sveitarfélagsins

Frístundastyrkur verði að meginreglu nýttur til þátttöku í skipulögðu íþrótta-, tómstunda- og æskulýðsstarfi innan Rangárþings ytra.

Heimilt verði að nýta styrkinn vegna starfsemi utan sveitarfélagsins þegar sambærileg starfsemi er ekki í boði innan Rangárþings ytra. Jafnframt verði heimilt að veita undanþágu frá þeirri meginreglu þegar sérstakar aðstæður mæla með því.

2. Skýrara skilyrði um reglubundið frístundastarf

Til þess að starfsemi teljist styrkhæf verði gerð krafa um að um sé að ræða skipulagt og reglubundið íþrótta-, tómstunda-, lista- eða æskulýðsstarf undir stjórn eða leiðsögn hæfs aðila og að þátttaka nái að jafnaði til að minnsta kosti sex vikna.



Lagt er til að breytingarnar taki gildi 1. janúar 2027.

Nefndin samþykkir að fresta afgreiðslu tillögunnar og felur íþrótta- og fjölmenningarfulltrúa að afla upplýsinga um fyrirkomulag frístundastyrkja í öðrum sveitarfélögum, með sérstakri áherslu á eftirfarandi atriði:
1.
Hvort og með hvaða hætti sveitarfélög forgangsraða frístundastarfi innan eigin sveitarfélags við úthlutun frístundastyrkja.
2.
Hvaða skilyrði eru gerð um reglubundna þátttöku, tímalengd og skipulag þeirrar starfsemi sem telst styrkhæf.
3.
Hvaða undanþágur eru heimilaðar frá almennum skilyrðum og á hvaða forsendum þær eru veittar.

Jafnframt óskar nefndin eftir að tekin verði saman gögn til greininga.