Málsnúmer 2502072
Vakta málsnúmerMarkaðs-, menningar- og jafnréttismálanefnd - 14. fundur - 25.02.2025
Hugmynd um „Hús frítímans“ kynnt. Hugmyndin byggir á reynslu frá á Sauðárkróki þar sem „Hús frítímans“ er miðstöð frístundastarfs í Skagafirði sem býður upp á fjölbreytta starfsemi fyrir alla aldurshópa.
Heilsu,- íþrótta- og tómstundanefnd - 20. fundur - 06.03.2025
Hugmyndir af frístundahúsi sem starfrækt er á Sauðárkróki. Þar eru sameinað í húsnæði ýmislegt frístundastarf.
Hugmynd um „Hús frítímans“ kynnt. Hugmyndin byggir á reynslu frá á Sauðárkróki þar sem „Hús frítímans“ er miðstöð frístundastarfs í Skagafirði sem býður upp á fjölbreytta starfsemi fyrir alla aldurshópa.
Nefndin fór yfir kynninguna og beinir því til sveitarstjórnar að skoða fram komin gögn og taka afstöðu til næstu skrefa. Nefndinni líst mjög vel á hugmyndina og telur að slíkt húsnæði yrði til mikilla hagsbóta fyrir íbúa sveitarfélagsins.

Byggðarráð Rangárþings ytra - 35. fundur - 26.03.2025
Lagt fram minnisblað byggðarþróunarfulltrúa, þar sem kynntar eru hugmyndir um "Hús frítímans" í Rangárþingi.
Stefán Friðrik Friðriksson, byggðaþróunarfulltrúi fer yfir minnisblað og upplýsingar varðandi mögulegt "Hús frítímans" í Rangárþingi ytra. Byggðarráð þakkar Stefáni fyrir kynninguna og felur honum að vinna áfram að málinu svo sem með þarfagreiningu og samráði við hagaðila.
Samþykkt samhljóða.

Sveitarstjórn Rangárþings ytra - 52. fundur - 11.02.2026
Lagt til að fjallað verði um hugmynd um „Hús frítímans“ eða "Ungmennahús" í sveitarfélaginu á ungmennaþingi sem haldið verður þann 19. febrúar n.k. Málið hefur þegar fengið umfjöllun í fagnefndum.
IPG og MHG tóku til máls.
Samþykkt samhljóða.
IPG og MHG tóku til máls.
Samþykkt samhljóða.
Nefndin leggur til að skoðað verði að nýta húsnæði sem losna þegar leikskóli og tónlistarskóli flytja í nýbyggingar skólanna.