Málsnúmer 2503012

Vakta málsnúmer

Sveitarstjórn Rangárþings ytra - 40. fundur - 12.03.2025

Frumvarp til laga um kílómetragjald á ökutæki og umsagnarbeiðni Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis um tillögu til þingsályktunar um breytingu á þingsályktun nr. 24/152 um áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.



Sveitarstjórn telur að fyrirliggjandi tillögur um kílómetragjald leggist af of miklum þunga á íbúa og atvinnustarfsemi í Rangárþingi ytra. Ríkið hefur ekki ráðstafað núverandi tekjustofnum að fullu í viðhald eða uppbyggingu vega. Áður en nýtt gjaldtökukerfi er tekið upp sem ljóst er að mun strax hafa íþyngjandi áhrif á allt samfélagið telur sveitarstjórn eðlilegt að ríkið nýti þá fjármuni í vegakerfið sem það hefur þegar innheimt. Að fenginni reynslu er engin trygging fyrir því að tekjur af nýrri gjaldtöku skili sér í uppbyggingu samgöngukerfisins. Lagt til að oddvitum listana verði falið að ganga frá og senda inn sameiginlega umsögn um frumvarpið.

IPG tók til máls.

Að öðru leyti er málið lagt fram til kynningar.

Byggðarráð Rangárþings ytra - 35. fundur - 26.03.2025

Umsagnarbeiði Umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis um Borgarstefnu, tillögu til þingsályktunar um breytingu á þingsályktun nr. 24/152 um vernd og orkunýtingu landsvæða og rannsóknir á jarðlögum og hafsbotni á fyrirhugaðri gangaleið milli lands og Vestmannaeyja.
Lögð fram umsögn sveitarstjórnar vegna tillögu til þingsályktunar um breytingu á þingsályktun nr. 24/152 um vernd og orkunýtingu landsvæða. Að öðru leyti er málið til kynningar.

Sveitarstjórn Rangárþings ytra - 41. fundur - 09.04.2025

Umsagnarbeiðni umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis um mál 268, Verndar- og orkunýtingaráætlun (bætt málsmeðferð og aukin skilvirkni).
Lagt fram til kynningar.

Byggðarráð Rangárþings ytra - 37. fundur - 23.04.2025

Umsagnarbeiðnir Umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis, 271. mál, stefnur og aðgerðaáætlanir á sviði húsnæðis- og skipulagsmála, samgöngu og byggðamála (stefnumörkun)og 272. mál, sveitarstjórnarlög (mat á fjárhagslegum áhrifum).
Lagt fram til kynningar.

Sveitarstjórn Rangárþings ytra - 42. fundur - 14.05.2025

Umsagnarbeiðni Umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis, 270. mál, Jöfnunarsjóður sveitarfélaga.
Lagt fram til kynningar.

Byggðarráð Rangárþings ytra - 38. fundur - 28.05.2025

Umsagnarbeiðni Atvinnuveganefndar Alþingis um frumvarp til laga um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands og stjórn fiskveiða (veiðistjórn grásleppu), 298. mál
Lagt fram til kynningar.

Sveitarstjórn Rangárþings ytra - 47. fundur - 08.10.2025

Umsagnarbeiðnir Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis um frumvarp til laga um stefnur og aðgerðaáætlanir á sviði húsnæðis- og skipulagsmála, samgangna og byggðamál (stefnumörkun) og tillögu til þingsályktunar um borgarstefnu fyrir árin 2025-2040.
Lagt fram til kynningar.

Byggðarráð Rangárþings ytra - 43. fundur - 22.10.2025

Umsangarbeiðnir Atvinnuveganefnd Alþingis um frumvarp til laga um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands og stjórn fiskveiða (veiðistjórn grásleppu) og Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis um frumvarp til laga um sveitarstjórnarlög (fjöldi fulltrúa í sveitarstjórn).
Lagt fram til kynningar.

Byggðarráð Rangárþings ytra - 44. fundur - 26.11.2025

Umsagnarbeiðnir Umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis um breytingu á þingsályktun nr. 24/152 um áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða, verndar- og orkunýtingaráætlun og raforkulög og innleiðing landsbyggðarmats í stefnumótun og lagasetningu stjórnvalda.
Lagt fram til kynningar.