Málsnúmer 2505067
Vakta málsnúmerAfgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 148. fundur - 11.06.2025
Byggingarfulltrúi Rangárþings ytra hefur móttekið umsókn Speglakots ehf um byggingu þjónustuhúss auk alls 6 stk forsmíðaðra gistiskála í samræmi við aðaluppdrætti frá HJ ark dags. 17.10.2023.
Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 14. fundur - 28.10.2026
Byggingarfulltrúi Rangárþings ytra tekur að nýju fyrir mál nr. 2505067 vegna áður útgefins byggingarleyfis til flutnings og uppsetningar fjögurra 20,2 m² gistiskála á lóð Speglakots ehf.
Guðmundur Hjaltason, hönnuður hjá Eflu, hefur lagt fram uppfærða aðaluppdrætti, dags. 20.10.2026, þar sem gistiskálum er fækkað úr fjórum í þrjá með því að fella út einn matshluta. Heildarflatarmál gistiskálanna verður því 60,6 m² í stað 80,8 m².

Byggingarfulltrúi samþykkir framlagða breytingu á áður samþykktum byggingaráformum samkvæmt uppfærðum aðaluppdráttum, dags. 20.10.2026. Breytingin felur í sér fækkun gistiskála úr fjórum í þrjá. Að öðru leyti gilda áfram skilyrði áður útgefins byggingarleyfis, eftir því sem við á.
Við yfirferð aðaluppdrátta var eftirfarandi athugasemd gerð:
Leiðrétta þarf matshlutanúmer þannig að þau verði mhl. 01, 02 og 03. Uppfæra skal matshlutanúmer til samræmis í byggingarlýsingu, á aðaluppdráttum og í skráningartöflum.

-Hönnunarstjóri hefur tilnefnt aðra hönnuði og þeir staðfest sig
-Hönnuðir hafa undirritað uppdrætti með rafrænni áritun sinni.
-Skráningartafla hefur borist.
-Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og lagt fram starfsábyrgðartryggingu.
-Byggingarstjóri hefur tilnefnt alla iðnmeistara og þeir staðfest sig á verkið.
-Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.
Við yfirferð aðaluppdrátta voru eftirfarandi athugasemdir gerðar:
Aðaluppdrættir vísa ekki til tilheyrandi lóðar.
Apaluppdrættir eru ekki í samræmi við akvæði reglugerðar. Vantar afstöðumynd og fl.