Málsnúmer 2505072

Vakta málsnúmer

Skipulags- og umferðarnefnd - 45. fundur - 05.06.2025

Eigendur lands óska eftir heimild til að leggja fram tillögu að deiliskipulagi þar sem gert er ráð fyrir byggingu tveggja einbýlishúsa, tveggja gestahúsa ásamt skemmu. Skipulagsgögn frá Axel Benediktssyni dags. 20.5.2025
Skipulags- og umferðarnefnd samþykkir að veita heimild til deiliskipulagsgerðar og leggur til að fallið verði frá kynningu lýsingar þar sem skipulagsáætlun samræmist stefnu aðalskipulagsins. Skipulagsnefnd samþykkir jafnframt framlagða tillögu og leggur til að hún verði auglýst skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Skipulags- og umferðarnefnd - 49. fundur - 21.08.2025

Eigendur Lýtingsstaða 6 hafa auglýst tillögu að deiliskipulagi þar sem gert er ráð fyrir byggingu tveggja einbýlishúsa, tveggja gestahúsa ásamt skemmu. Skipulagsgögn frá Axel Benediktssyni dags. 20.5.2025. Tillagan var auglýst frá og með 11.6.2025 til og með 30.7.2025. Umsagnir bárust frá Mílu, Náttúruverndarstofnun, Veitum, Heilbrigðiseftirliti Suðurlands og Landsneti sem gerðu engar athugasemdir; frá Vegagerðinni sem hafnar framlagðri tillögu að vegtengingu og frá Brunavörnum Rangárvallasýslu sem bendir á að öxulþungi vega innan svæði skuli vera 32 tonn og að trjágróður megi ekki hindra aðkomu slökkvibíla.
Skipulags- og umferðarnefnd hefur farið yfir fram komnar umsagnir. Nefndin telur að búið sé að taka tillit til fram kominna athugasemda í fyrirliggjandi tillögu og leggur til að tillagan verði send Skipulagsstofnun til endanlegrar afgreiðslu í samræmi við 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.