Málsnúmer 2505098

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 147. fundur - 04.06.2025

Byggingarfulltrúi Rangárþings ytra hefur móttekið umsókn S Fannberg ehf um byggingu á bogaskemmu í samræmi við aðaluppdrætti frá ASK arkitektar dags. 21.5.2025.
Byggingaráform eru samþykkt. Framkvæmdin fellur undir umfangsflokk 1. Byggingarheimild verður gefin út þegar eftirfarandi liggur fyrir:
-Hönnuður hefur undirritað aðaluppdrætti með rafrænni áritun sinni.
-Skráningartafla hefur borist.
-Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og lagt fram starfsábyrgðartryggingu.
-Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.
Við yfirferð aðaluppdrátta voru eftirfarandi athugasemdir gerðar:
Gera þarf betur grein fyrir reyklosun og loftræstingu.
Ekki liggur fyrir uppgefið brunaálag byggingarinnar.

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 5. fundur - 15.07.2026

Byggingarfulltrúi Rangárþings ytra hefur móttekið umsókn S Fannberg ehf um byggingu á bogaskemmu í samræmi við aðaluppdrætti frá ASK arkitektar dags. 21.5.2025. Uppfærðir aðaluppdrættir bárust 10.7.2026