Málsnúmer 2508027

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 151. fundur - 13.08.2025

Byggingarfulltrúi Rangárþings ytra hefur móttekið umsókn Íslandsturna ehf um uppsetningu á fjarskiptamastri á lóðinni Krikakot úr landi Köldukinnar í samræmi við aðaluppdrætti frá Bjarka Guðmundssyni dags. 28.7.2025.

Forsmíðað heitgalvanhúðað stálmastur (röramastur) er fest á staðsteypta undirstöðu með festiboltum. Undirstöður eru gerðar á þjappað undirlag með jarðfyllingu ofan á steypufæti. Steyptur hnallur undir mastur og búnað verður sýnilegur í frágengnu landi.
Þar sem staðsetning á umræddu mastri er ekki í samræmi við skipulagsáætlanir á svæðinu telur byggingarfulltrúi að vert sé að grenndarkynna áformin til nærliggjandi lóðarhafa / eigenda í samræmi við 2. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, og felur skipulags- og umferðarnefnd að taka það til skoðunar.

Skipulags- og umferðarnefnd - 49. fundur - 21.08.2025

Byggingarfulltrúi Rangárþings ytra hefur móttekið umsókn Íslandsturna hf um uppsetningu á fjarskiptamastri á lóðinni Krikakot úr landi Köldukinnar í samræmi við aðaluppdrætti frá Bjarka Guðmundssyni dags. 28.7.2025.

Forsmíðað heitgalvanhúðað stálmastur (röramastur) er fest á staðsteypta undirstöðu með festiboltum. Undirstöður eru gerðar á þjappað undirlag með jarðfyllingu ofan á steypufæti. Steyptur hnallur undir mastur og búnað verður sýnilegur í frágengnu landi. Erindinu vísað til nefndarinnar þar sem uppsetning mastursins er ekki í samræmi við deiliskipulag svæðisins.
Skipulags- og umferðarnefnd leggur til að erindið verði grenndarkynnt nærliggjandi lóðarhöfum á svæðinu. Þar sem staðsetning mastursins er hugsuð í miðri skipulagðri byggð tekur nefndin réttast að umsækjandi geri nauðsynlegar breytingar á gildandi deiliskipulagi þar sem mastrið verði sett inn.

Skipulags- og umferðarnefnd - 52. fundur - 02.10.2025

Byggingarfulltrúi Rangárþings ytra hefur móttekið umsókn Íslandsturna ehf um uppsetningu á fjarskiptamastri á lóðinni Krikakot úr landi Köldukinnar í samræmi við aðaluppdrætti frá Bjarka Guðmundssyni dags. 28.7.2025.

Forsmíðað heitgalvanhúðað stálmastur (röramastur) er fest á staðsteypta undirstöðu með festiboltum. Undirstöður eru gerðar á þjappað undirlag með jarðfyllingu ofan á steypufæti. Steyptur hnallur undir mastur og búnað verður sýnilegur í frágengnu landi. Málið var grenndarkynnt nærliggjandi lóðarhöfum. Grenndarkynningu lauk 22.09.2025. Athugasemd barst frá nærliggjandi eiganda lands þar sem gerðar voru athugasemdir við áformaða staðsetningu.
Skipulags- og umferðarnefnd hefur yfirfarið þær athugasemdir sem bárust á tímabili grenndarkynningar. Nefndin telur að fyrirhuguð staðsetning sé ekki besta lausnin og óskar því eftir við umsækjanda að hann leggi fram nýja tillögu að staðsetningu á þessu svæði.

Skipulags- og umferðarnefnd - 56. fundur - 04.12.2025

Byggingarfulltrúi Rangárþings ytra hefur móttekið umsókn Íslandsturna ehf um uppsetningu á fjarskiptamastri á lóðinni Krikakot úr landi Köldukinnar í samræmi við aðaluppdrætti frá Bjarka Guðmundssyni dags. 28.7.2025. Forsmíðað heitgalvanhúðað stálmastur (röramastur) er fest á staðsteypta undirstöðu með festiboltum. Undirstöður eru gerðar á þjappað undirlag með jarðfyllingu ofan á steypufæti. Steyptur hnallur undir mastur og búnað verður sýnilegur í frágengnu landi. Málið var grenndarkynnt nærliggjandi lóðarhöfum. Grenndarkynningu lauk 22.09.2025. Athugasemd barst frá nærliggjandi eiganda lands þar sem gerðar voru athugasemdir við áformaða staðsetningu. Skipulags- og umferðarnefnd gat ekki fallist á fram lagða staðsetningu og óskaði því eftir nýrri staðsetningu frá umsækjanda á fundi 2.10.2025. Lögð er fram ný tillaga með nýrri staðsetningu.
Skipulags- og umferðarnefnd leggur til að erindið verði grenndarkynnt að nýju til sömu aðila og siðast. Þar sem staðsetning mastursins er hugsuð í miðri skipulagðri byggð telur nefndin réttast að umsækjandi geri nauðsynlegar breytingar á gildandi deiliskipulagi þar sem mastrið verði sett inn þegar staðsetning þess hefur verið staðfest.

Skipulags- og umferðarnefnd - 57. fundur - 08.01.2026

Byggingarfulltrúi Rangárþings ytra hefur móttekið umsókn Íslandsturna ehf um uppsetningu á fjarskiptamastri á lóðinni Krikakot úr landi Köldukinnar í samræmi við aðaluppdrætti frá Bjarka Guðmundssyni dags. 28.7.2025. Forsmíðað heitgalvanhúðað stálmastur (röramastur) er fest á staðsteypta undirstöðu með festiboltum. Undirstöður eru gerðar á þjappað undirlag með jarðfyllingu ofan á steypufæti. Steyptur hnallur undir mastur og búnað verður sýnilegur í frágengnu landi. Málið hefur tvisvar verið grenndarkynnt nærliggjandi lóðarhöfum. Athugasemdir bárust í bæði skiptin frá nærliggjandi eiganda lands þar sem gerðar voru athugasemdir við áformaða staðsetningu.
Skipulags- og umferðarnefnd telur að þrátt fyrir tillögu að nýrri staðsetningu hafi ekki náðst fram nauðsynleg sátt um staðsetningu umrædds mannvirkis á svæðinu og leggur til að fundað verði með fulltrúum Íslandsturna áður en lengra er haldið þar sem meðal annars væri óskað upplýsinga um gæði fjarskiptasambands á svæðinu og metin þörf á úrbótum.

Skipulags- og umferðarnefnd - 58. fundur - 22.01.2026

https://kortasja.lmi.is/mapview/?application=fjarskiptastofa

Byggingarfulltrúi Rangárþings ytra hefur móttekið umsókn Íslandsturna ehf um uppsetningu á fjarskiptamastri á lóðinni Krikakot úr landi Köldukinnar í samræmi við aðaluppdrætti frá Bjarka Guðmundssyni dags. 28.7.2025. Málið hefur tvisvar verið grenndarkynnt nærliggjandi lóðarhöfum. Athugasemdir bárust í bæði skiptin frá nærliggjandi eiganda lands þar sem gerðar voru athugasemdir við áformaða staðsetningu.
Skipulags- og umferðarnefnd frestar afgreiðslu erindisins meðan Íslandsturnar skoða möguleika til betri staðsetningar.