Málsnúmer 2510045

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 164. fundur - 22.12.2025

Byggingarfulltrúi Rangárþings ytra hefur móttekið umsókn um breytingu á áður samþykktum byggingaráformum fyrir Rangá veiðihús (L198604). Með umsókninni hafa verið lagðir fram uppfærðir aðaluppdrættir unnir af Hannesi Árnasyni, dagsettir 22.9.2025. Um er að ræða setustofu við syðra gistihúsið, matshluta 02.

Setustofan byggist á milli núverandi gistirýma og er ekki innangengt úr þeim.

Setustofan fær sitt eigið matshlutanúmer.
Byggingaráform eru samþykkt. Framkvæmdin fellur undir umfangsflokk 2. Byggingarleyfi verður gefið út þegar eftirfarandi liggur fyrir:
-Hönnunarstjóri hefur tilnefnt aðra hönnuði og þeir staðfest sig
-Hönnuðir hafa undirritað uppdrætti með rafrænni áritun sinni.
-Skráningartafla hefur borist.
-Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og lagt fram starfsábyrgðartryggingu.
-Byggingarstjóri hefur tilnefnt alla iðnmeistara og þeir staðfest sig á verkið.
-Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.
-Lífsferilsgreining skal liggja fyrir.
Við yfirferð aðaluppdrátta voru eftirfarandi athugasemdir gerðar:
Þar sem setustofa mun fá sitt eigið matshlutanúmer þarf að brunahólfa setustofu frá öðrum matshlutum og skal hólfum vera a.m.k EI 90.
Brunahólfandi hurðir og eða glugga vantar þar sem rof er í brunahólfun.
Öryggisgler skal vera í gólfsíðum gluggum.
Gólfniðurföll vantar á baðherbergi.

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 166. fundur - 14.01.2026

Byggingarfulltrúi Rangárþings ytra hefur móttekið umsókn um breytingu á áður samþykktum byggingaráformum fyrir Rangá veiðihús(L198604). Með umsókninni hafa verið lagðir fram uppfærðir aðaluppdrættir unnir af Hannesi Árnasyni, dagsettir 22.9.2025. Sótt er um leyfi fyrir viðbyggingu setustofu á milli núverandi gistirýma.
Byggingaráform eru samþykkt. Framkvæmdin fellur undir umfangsflokk 1. Byggingarheimild verður gefin út þegar eftirfarandi liggur fyrir:
-Hönnuður hefur undirritað aðaluppdrætti með rafrænni áritun sinni.
-Skráningartafla hefur borist.
-Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og lagt fram starfsábyrgðartryggingu.
-Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.
Við yfirferð aðaluppdrátta voru eftirfarandi athugasemdir gerðar:
Merkja þarf brunahólfun á milli herbergja (mhl.03, rými 0102).
Gera þarf grein fyrir sjálfvirku brunaviðvörunarkerfi, sbr 9.4.2 gr. byggingarreglugerðar 112/2012.

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 168. fundur - 04.02.2026

Byggingarfulltrúi Rangárþings ytra hefur móttekið umsókn um breytingu á áður samþykktum byggingaráformum fyrir Rangá veiðihús(L198604). Með umsókninni hafa verið lagðir fram uppfærðir aðaluppdrættir unnir af Hannesi Árnasyni, dagsettir 22.9.2025. Sótt er um leyfi fyrir viðbyggingu setustofu á milli núverandi gistirýma.
Byggingaráform eru samþykkt. Framkvæmdin fellur undir umfangsflokk 2. Byggingarleyfi verður gefið út þegar eftirfarandi liggur fyrir:
-Hönnunarstjóri hefur tilnefnt aðra hönnuði og þeir staðfest sig
-Hönnuðir hafa undirritað uppdrætti með rafrænni áritun sinni.
-Greinargerðir hönnuða hafi borist.
-Skráningartafla hefur borist.
-Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og lagt fram starfsábyrgðartryggingu.
-Byggingarstjóri hefur tilnefnt alla iðnmeistara og þeir staðfest sig á verkið.
-Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 5. fundur - 15.07.2026

Byggingarfulltrúi Rangárþings ytra hefur móttekið umsókn um breytingu á áður samþykktum byggingaráformum fyrir Rangá veiðihús (L198604). Með umsókninni hafa verið lagðir fram uppfærðir aðaluppdrættir unnir af Hannesi Árnasyni, dagsettir 23.04.2026.

Sótt er um leyfi til að byggja setustofu á milli núverandi gistirýma. Á afgreiðslufundi byggingarfulltrúa þann 14. janúar 2026 voru samþykkt byggingaráform á lóðinni sem gerðu ráð fyrir umfangsmeiri framkvæmdum en nú er óskað eftir. Með þessari umsókn hefur því verið fallið frá hluta þeirra framkvæmda sem áður voru fyrirhugaðar og byggingaráformin endurskoðuð til samræmis við það.
Byggingaráform samkvæmt uppfærðum aðaluppdráttum eru samþykkt.

Öll áform um frekari byggingarframkvæmdir á lóðinni, umfram þær sem nú eru teknar fyrir og samþykktar, skulu sæta nýrri umsókn og leyfisveitingu.

Framkvæmdin fellur undir umfangsflokk 1. Byggingarheimild verður gefin út þegar eftirfarandi liggur fyrir: