Málsnúmer 2512034

Vakta málsnúmer

Skipulags- og umferðarnefnd - 57. fundur - 08.01.2026

Úlfar Ísfeld Rögnvaldsson fyrir hönd Lake Cabin ehf óskar eftir heimild til að leggja fram tillögu að deiliskipulagi fyrir lóð sína. Gert verði ráð fyrir byggingu íbúðarhúss og gestahúsum til útleigu.
Skipulags- og umferðarnefnd samþykkir að veita heimild til deiliskipulagsgerðar og leggur til að þar sem breyting á landnotkun í aðalskipulagi er yfirstandandi verði fallið verði frá kynningu lýsingar.

Skipulags- og umferðarnefnd - 6. fundur - 17.09.2026

Úlfar Ísfeld Rögnvaldsson fyrir hönd Lake Cabin ehf hefur fengið heimild til að leggja fram tillögu að deiliskipulagi fyrir lóð sína. Gert verði ráð fyrir byggingu íbúðarhúss og gestahúsum til útleigu. Lögð er fram tillaga frá Pétri Jónssyni dags. 19.8.2026.
Skipulags- og umferðarnefnd samþykkir framlagða tillögu og leggur til að hún verði auglýst skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.