Málsnúmer 2601010

Vakta málsnúmer

Sorpstöð Rangárvallasýslu bs - 252. fundur - 12.01.2026

Haukur Þórðarsson framkvæmdastjóri SOR fór yfir ýmis rekstrarmál sem tengjast SOR og leggur fram minnisblað.

Huga þarf að viðbrögðum við skýrslum eftirlitsaðila, m.a. vottun o.fl. vegna vigtunar. Nauðsynlegt er að breyta verklagi varðandi móttöku á dýraleifum o.fl. þar sem aðilum á starfssvæði SOR verði veittur forgangur, m.a. vegna takmarkana á starfsleyfi á Strönd. Stjórn samþykkir að fela framkvæmdastjóra að vinna málið áfram. Vegna takmarkana á starfsleyfi SOR þá sér stjórn ekki fært að taka á móti dýraleifum frá öðrum en þeim sem eru með starfssemi á starfssvæði SOR. Framkvæmdastjóra falið að fylgja málinu eftir og tilkynna viðeigandi aðilum.

Það þarf að fara í að tryggja rekstraröryggi og aðstöðu á Strönd. Hefta þarf fok af svæðinu, bæta móttöku á spilliefnum, fara í viðgerð á pressu og bæta vinnuaðstæður í skemmu. Stjórn samþykkir að fara í viðgerðir á pressu, að komið verði upp ca. 40m2 upphitaðri geymslu inn í skemmunni á Strönd og bæta móttöku spilliefna.

Það er mat framkvæmdastjóra að endurnýja þurfi krókheysisbílinn. Þá leggur hann til að frestað verði að selja aðra gröfuna vegna verkefna sem eru nauðsynleg að fara í. Lagt er til að selja varabíl í sorphirðu og kassavagn. Huga þarf síðan að viðhaldi á sorphirðubifreiðum.

Það þarf að auglýsa eftir nýjum starfsmanni með a.m.k. með vinnuvélaréttindi. Þá þarf að auglýsa eftir þremur sumarstarfsmönnum. Stjórn samþykkir að fela framkvæmdastjóra að auglýsa eftir starfsmönnum.

Sorpstöð Rangárvallasýslu bs - 253. fundur - 26.01.2026

Haukur Þórðarsson framkvæmdastjóri SOR fór yfir ýmis rekstrarmál SOR sem tengjast minnisblaði sem lagt var fram á síðasta stjórnarfundi.

Sorpstöð Rangárvallasýslu bs - 254. fundur - 23.03.2026

Haukur Þórðarsson framkvæmdastjóri SOR fór yfir ýmis rekstrarmál SOR. Pappírspressa er komin úr viðgerð en kostnaður við nauðsynlegar viðgerðir varð meiri en áætlanir gerðu ráð fyrir. Þá er verið að vinna að lausnum varðandi móttöku á spilliefnum og lituðu timbri. Verið er að vinna að tiltekt á svæðinu og viðhaldi á tækjum. Geymsluaðstaðan í skemmunni á Strönd er í vinnslu og stefnt að hún verði tilbúin í vor. Samhliða er verið að greina betur kostnað við að hita upp skemmuna og þróa hugmyndir að nýs móttökuhúss. Stjórn felur framkvæmdastjóra að hefja vinnu við hönnun hússins.

Sorpstöð Rangárvallasýslu bs - 256. fundur - 22.06.2026

Framkvæmdastjóri fer yfir ýmis rekstrarmál.
Framkvæmdarstjóri fór yfir ýmiss rekstrarmál.

Sorpstöð Rangárvallasýslu bs - 257. fundur - 20.07.2026

Framkvæmdarstjóri fór yfir ýmiss rekstrarmál.