Málsnúmer 2601031
Vakta málsnúmerSveitarstjórn Rangárþings ytra - 52. fundur - 11.02.2026
Fundargerð stjórnar frá 20. janúar s.l. Liður 1 um lántöku ttil afgreiðslu.
Sveitarstjórn Rangárþings ytra - 57. fundur - 13.05.2026
Fundargerð stjórnarfundar frá 27. apríl s.l., ársreikningur 2025 og úttektarskýrsla HMS.
Fundargerðin lögð fram til kynningar og lagt til að ársreikningur 2025 verði staðfestur fyrir okkar leyti.
Jafnframt er lagt til að slökkviliðsstjóra verði falið að svara HMS varðandi viðbrögð við úttekstarskýrslu HMS á Brunavörnum Rangárvallasýslu bs.
Samþykkt samhljóða.
Jafnframt er lagt til að slökkviliðsstjóra verði falið að svara HMS varðandi viðbrögð við úttekstarskýrslu HMS á Brunavörnum Rangárvallasýslu bs.
Samþykkt samhljóða.
Sveitarstjórn Rangárþings ytra - 3. fundur - 12.08.2026
Lagt fram til kynningar.
Sveitarstjórn Rangárþings ytra samþykkir hér með á fundi sínum að veita einfalda ábyrgð á láni Brunavarna Rangárvallasýslu hjá Lánasjóði sveitarfélaga og veðsetja tekjur sveitarfélagsins til tryggingar ábyrgðinni, sbr. heimild í 2. mgr. 68. gr. og 1. mgr. 69. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011. Ábyrgðin nær til láns að fjárhæð, allt að kr. 45.000.000,- ásamt vöxtum, verðbótum, dráttarvöxtum, uppgreiðslugjaldi og öðrum kostnaði, samkvæmt þeim lánaskilmálum sem í boði eru þegar lánið er tekið. Lántakan er í formi langtímaláns í þeim skuldabréfaflokkum sem Lánasjóðurinn býður hverju sinni. Sveitarstjórnin hefur kynnt sér skilmála viðkomandi skuldabréfaflokka eins og þeir birtast á heimasíðu Lánasjóðsins. Samþykkið nær jafnframt til undirritunar lánasamnings og þess að sveitarfélagið taki á sig þær skyldur sem þar greinir.
Lánið er tekið til fjármögnunar á nýjum dælubíl Brunavarna Rangárvallasýslu bs. sem staðsettur verður í slökkvistöðinni á Hellu. Um er að ræða verkefni sem hefur almenna efnahagslega þýðingu, sbr. 3. gr. laga nr. 150/2006 um stofnun opinbers hlutafélags um Lánasjóð sveitarfélaga.
Sveitarstjórnin skuldbindur sveitarfélagið sem eiganda Brunavarna Rangárvallasýslu bs til að selja ekki eignarhlut sinn til einkaaðila, í heild eða að hluta, fyrr en lánið hefur verið að fullu greitt.
Ef sveitarfélagið selur eignarhlut sinn til annarra opinberra aðila, skuldbindur sveitarfélagið sig til að tryggja að nýr eigandi yfirtaki ábyrgð á láninu í hlutfalli við eignarhlut sinn í félaginu.
Jafnframt er Jóni G. Valgeirssyni, sveitarstjóra, kt. 060568-4809 veitt fullt og ótakmarkað umboð til að undirrita lánasamning við Lánasjóð sveitarfélaga f.h. Rangárþings ytra, sem og til að móttaka, undirrita, gefa út og afhenda öll skjöl, fyrirmæli og tilkynningar sem tengjast lántökunni, þar á meðal beiðni um útborgun láns.
Samþykkt samhljóða.