Málsnúmer 2601059
Vakta málsnúmerSkipulags- og umferðarnefnd - 59. fundur - 05.02.2026
Eigandi lóðarinnar Svínhagi 2 óskar eftir að leggja fram tillögu að deiliskipulagi fyrir lóð sína. Markmiðið er að skapa hágæða gistiaðstöðu sem styður við ferðaþjónustu á svæðinu auk þess að flytja lögheimili á lóðina.
Skipulags- og umferðarnefnd samþykkir að veita heimild til deiliskipulagsgerðar og leggur til að fallið verði frá kynningu lýsingar þar sem skipulagsáætlun samræmist stefnu aðalskipulagsins. Nefndin vill árétta að ekki er talin þörf á að breyta landnotkun í aðalskipulagi vegna þessa og að farið skuli eftir ákvæðum kafla 2.3.1 í greinargerð aðalskipulagsins hvað varðar heimilað byggingarmagn á lóðinni.
Skipulags- og umferðarnefnd - 66. fundur - 11.05.2026
Eigandi lóðarinnar Svínhagi 2 leggur fram tillögu að deiliskipulagi fyrir lóð sína. Markmiðið er að skapa hágæða gistiaðstöðu sem styður við ferðaþjónustu á svæðinu auk þess að flytja lögheimili á lóðina.
Skipulags- og umferðarnefnd samþykkir framlagða tillögu og leggur til að hún verði auglýst skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Skipulags- og umferðarnefnd - 3. fundur - 02.07.2026
Eigandi lóðarinnar Svínhagi 2 hefur lagt fram tillögu að deiliskipulagi fyrir lóð sína. Markmiðið er að skapa hágæða gistiaðstöðu sem styður við ferðaþjónustu á svæðinu auk þess að flytja lögheimili á lóðina. Tillaga var auglýst frá og með 15. maí til og með 1. júlí 2026. Umsagnir hafa borist frá alls 6 umsagnaraðilum en engar athugasemdir voru gerðar. Skoða má allar umsagnir undir máli nr. 608/2026 í skipulagsgáttinni, https://skipulagsgatt.is/issues/2026/608.
Skipulags- og umferðarnefnd telur að fram komnar umsagnir leiði ekki til breytinga á auglýstri tillögu og leggur til að tillagan verði send Skipulagsstofnun til endanlegrar afgreiðslu í samræmi við 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Skipulags- og umferðarnefnd - 5. fundur - 20.08.2026
Eigandi lóðarinnar Svínhagi 2 leggur fram tillögu að deiliskipulagi fyrir lóð sína. Markmiðið er að skapa hágæða gistiaðstöðu sem styður við ferðaþjónustu á svæðinu auk þess að flytja lögheimili á lóðina. Eftir auglýsingu tillögunnar bárust ábendingar frá Skipulagsstofnun sem þarfnast viðbragða. Lögð er fram uppfærð tillaga frá Landmótun.
Skipulags- og umferðarnefnd hefur farið yfir athugasemdir HMS og uppfærð skipulagsgögn. Nefndin telur að ekki hafi verið brugðist að fullu við öllum athugasemdum. Nefndin leggur til að byggingarreitur B verði færður þannig að 50 m fjarlægð frá Selsundslæk sé virt og sé í samræmi við skipulagsreglugerð nr. 90/2013, grein 5.3.2.14. Varðandi byggingarreit A gerir nefndin engar athugasemdir við að undanþága verði veitt til viðbyggingar eða aukabygginga sem þurfi þá að vera staðsettar fjær læknum.