Málsnúmer 2601359

Vakta málsnúmer

Skipulags- og umferðarnefnd - 59. fundur - 05.02.2026

Sveitarfélagið samþykkti 22.10.2025 að gerðar verði nauðsynlegar breytingar á aðalskipulagi sveitarfélagsins þar sem núverandi landnotkun landbúnaðarsvæðis verði breytt í Verslunar- og þjónustusvæði. Lögð er fram lýsing skipulagsáforma dags. 30.1.2026.
Skipulags- og umferðarnefnd gerir ekki athugasemdir við fyrirliggjandi lýsingu og leggur til að hún verði send til umsagnar og kynnt skv. 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Skipulags- og umferðarnefnd - 64. fundur - 09.04.2026

Sveitarfélagið samþykkti 22.10.2025 að gerðar verði nauðsynlegar breytingar á aðalskipulagi sveitarfélagsins þar sem núverandi landnotkun landbúnaðarsvæðis verði breytt í Verslunar- og þjónustusvæði. Lýsing skipulagsáforma hefur verið kynnt. Umsagnir bárust frá alls 8 aðilum.
Skipulags- og umferðarnefnd hefur farið yfir fram komnar umsagnir og athugasemdir Skipulagsstofnunar. Skipulags- og umferðarnefnd samþykkir tillöguna til auglýsingar í samræmi við 31. grein skipulagslaga nr. 123/2010 en áður verði hún kynnt í samræmi við 2. mgr. 30. gr. sömu laga.

Skipulags- og umferðarnefnd - 4. fundur - 06.08.2026

Sveitarfélagið samþykkti 22.10.2025 að gerðar verði nauðsynlegar breytingar á aðalskipulagi sveitarfélagsins þar sem núverandi landnotkun landbúnaðarsvæðis verði breytt í Verslunar- og þjónustusvæði. Tillaga var auglýst frá og með 28.5.2026 til og með 15.7.2026. Umsagnir bárust frá alls 8 aðilum. Vegagerðin fer fram á að unnið verði að gerð samgöngumats vegna mikillar aukningar á umferð um svæðið. Athugasemdir bárust frá nærliggjandi lóðareigendum norðan Selsundslækjar. Lögð er fram samantekt á athugasemdum og ábendingum og drög að viðbrögðum við þeim.
Skipulags- og umferðarnefnd leggur til við sveitarstjórn að unnið verði samgöngumat í samræmi við umsögn Vegagerðarinnar vegna aukinnar uppbyggingar á svæðinu.

Skipulags- og umferðarnefnd - 5. fundur - 20.08.2026

Ásgeir Jónsson frá Eflu fór yfir áherslur málsins
Sveitarfélagið samþykkti 22.10.2025 að gerðar verði nauðsynlegar breytingar á aðalskipulagi sveitarfélagsins þar sem núverandi landnotkun landbúnaðarsvæðis verði breytt í Verslunar- og þjónustusvæði. Tillaga var auglýst frá og með 28.5.2026 til og með 15.7.2026. Umsagnir bárust frá alls 8 aðilum. Vegagerðin fer fram á að unnið verði að gerð samgöngumats vegna mikillar aukningar á umferð um svæðið. Athugasemdir bárust frá nærliggjandi lóðareigendum norðan Selsundslækjar. Lögð er fram samantekt á athugasemdum og ábendingum og drög að viðbrögðum við þeim ásamt uppfærðum skipulagsgögnum. nefndin samþykkti á síðasta fundi að unnið yrði að samgöngumati fyrir heildarsvæðið.
Skipulags- og umferðarnefnd hefur farið yfir umsagnir umsagnaraðila. Nefndin samþykkir fyrirliggjandi tillögu og leggur til að hún verði afgreidd skv. 2. mgr. 32. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og send Skipulagsstofnun.
Skipulags- og umferðarnefnd áréttar og leggur til að unnið verði sérstakt samgöngumat fyrir ofanverða Rangárvelli og Landsveit með tilliti til mikillar uppbyggingar, bæði til íbúðar- og frístundabyggðar - og varðandi uppbyggingar verslunar- og þjónustusvæða.




Ásgeir Jónsson vék af fundi.

Sveitarstjórn Rangárþings ytra - 4. fundur - 09.09.2026

Skipulags- og umferðarnefnd hefur farið yfir umsagnir umsagnaraðila. Nefndin samþykkir fyrirliggjandi tillögu og leggur til að hún verði afgreidd skv. 2. mgr. 32. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og send Skipulagsstofnun. Skipulags- og umferðarnefnd áréttar og leggur til að unnið verði sérstakt samgöngumat fyrir ofanverða Rangárvelli og Landsveit með tilliti til mikillar uppbyggingar, bæði til íbúðar- og frístundabyggðar - og varðandi uppbyggingar verslunar- og þjónustusvæða.

Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.

Samþykkt samhljóða.