Málsnúmer 2603005F

Vakta málsnúmer

Sveitarstjórn Rangárþings ytra - 57. fundur - 13.05.2026

Fundargerðin að öðru leyti lögð fram til kynningar.
  • .6 2311062 Bjargshverfi
    Framkvæmda- og eignanefnd - 11 Tómas Haukur fór yfir niðurstöðu verðkönnunar um gatna- og veituhönnun fyrir Bjargshverfið. Tvö tilboð bárust en EFLA var með lægsta verðið. Stjórn samþykkir að ganga til samninga við EFLU um verkið.
    Bókun fundar Lagt til að samþykkja tillögu nefndarinnar.

    Samþykkt samljóða.
  • Framkvæmda- og eignanefnd - 11 Sveitarstjóri fór yfir niðurstöðu ársreiknings Rangárljóss fyrir árið 2025. Rekstrartekjur Rangárljóss námu 23,3 millj. kr. á árinu 2025 og hækkuðu um 1,1 millj. kr. milli ára og hagnaður félagsins á árinu 2025 nam 7,8 millj. kr. Eigið fé félagsins í árslok var jákvætt um 159,6 millj. kr. að meðtöldu stofnfé Rangárljóss 142,6 millj.kr.

    Nefndin leggur til að ársreikningurinn verði samþykktur og vísað til sveitarstjórnar til afgreiðslu.

    Samþykkt samhljóða
    Bókun fundar Lagt til að samþykkja ársreikning Rangárljósa 2025 og hann undirritaður.

    Samþykkt samljóða.