Málsnúmer 2603059

Vakta málsnúmer

Byggðarráð Rangárþings ytra - 47. fundur - 25.03.2026

Eitt erindi hefur borist í hugmyndagátt á heimasíðu sveitarfélagsins um laus skilti á vörubrettum á Hellu. Byggðarráð þakkar fyrir ábendingu og vísar málin til skoðunar hjá byggingarfulltrúa en til eru reglur um staðsetningu og útlit auglýsingaskilta í Rangárþingi ytra.

Byggðarráð Rangárþings ytra - 1. fundur - 24.06.2026

Erindi vegna garðslátts fyrir eldri borgara.
Byggðarráð þakkar ábendinguna og vísar henni til þjónustumiðstöðvar til úrvinnslu og úrbóta.

Byggðarráð Rangárþings ytra - 3. fundur - 26.08.2026

Þrjár ábendingar hafa komið frá síðasta fundi Byggðarráðs. Ábending um umferð ökutækja á göngustíg yfir hólinn, skemmdarverk í þorpinu og að þörf sé á fjölgun bekkja á göngustíg meðfram Ytri-Rangá.

Byggðarráð þakkar ábendingarnar. Ábendingu um umferð ökutækja á göngustíg og fjölgun bekkja er vísað til eigna- og framkvæmdanefndar. Ábending um skemmdarverk er tekin alvarlega og sveitarstjóra falið að skoða möguleika til að bregðast við þeim.

Samþykkt samhljóða.