Málsnúmer 2603094
Vakta málsnúmerSkipulags- og umferðarnefnd - 64. fundur - 09.04.2026
Eigendur Oddsparts óska eftir heimild til að leggja fram tillögu að breytingu á gildandi deiliskipulagi dags. 19.9.2025. Um er að ræða breytingar á legu vegar innan svæðis, aukning á fjölda bygginga og tilfærsla á byggingarreit. Breyting frá Eflu dags. 26.3.2026.
Skipulagsnefnd samþykkir að veita heimild til deiliskipulagsgerðar og leggur til að fallið verði frá kynningu lýsingar þar sem skipulagsáætlun samræmist stefnu aðalskipulagsins en tilheyrandi breyting er hafin á aðalskipulagi. Skipulagsnefnd samþykkir jafnframt framlagða tillögu og leggur til að hún verði auglýst skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Skipulags- og umferðarnefnd - 6. fundur - 17.09.2026
Eigendur Oddsparts óska eftir heimild til að leggja fram tillögu að breytingu á gildandi deiliskipulagi dags. 19.9.2025. Um er að ræða breytingar á legu vegar innan svæðis, aukning á fjölda bygginga og tilfærsla á byggingarreit. Tillagan var auglýstfrá og með 16.7.2026 til og með 2.9.2026. Umsagnir bárust frá alls 6 aðilum og má skoða allar umsagnir undir máli nr. 454/2026 í skipulagsgáttinni. Engar athugasemdir voru gerðar.
Skipulags- og umferðarnefnd telur að fram komnar umsagnir leiði ekki til breytinga á auglýstri tillögu og leggur til að tillagan verði send Skipulagsstofnun til endanlegrar afgreiðslu í samræmi við 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.