Málsnúmer 2604007F

Vakta málsnúmer

Sveitarstjórn Rangárþings ytra - 57. fundur - 13.05.2026

Fundargerðin að öðru leyti lögð fram til kynningar.
  • Heilsu,- íþrótta- og tómstundanefnd - 29 Nefndin beinir því til næstu sveitarstjórnar að við fjárhagsáætlunargerð næsta árs og áranna þar á eftir verði auknu fjármagni beint til reksturs sundlaugarinnar á Laugalandi. Markmiðið með þessu væri að skapa möguleika á auknum opnunartíma sundlaugarinnar með það fyrir augum að sundlaugin á Laugalandi verði ákjósanlegt val fyrir hina ýmsu hópa samfélagsins, allt árið um kring. Breytingar gerast ekki á einni nóttu og því lykilatriði að stilla verkefnið til langs tíma, sinna markaðssetningu sem skyldi og fylgjast gaumgæfilega með árlegri notkun laugarinnar. Í heilsueflandi samfélagi líkt og Rangárþingi ytra væru tvær vel reknar sundlaugar eitthvað sem gætum hreykt okkur af.

    Tillaga nefndarinnar að opnunartíma:
    Stytta opnunartíma um helgar og bæta við opnun tvo daga í miðri viku
    Gæti litið svona út:
    föstudagar 15:00 - 21:00
    laugardagar 11:00 - 18:00
    sunnudagar 10:00 - 15:00

    þriðjudagar 16:00 - 20:00*
    fimmtudagar 16:00 - 20:00*

    Ef þessi leið er farin þá þarf óska eftir viðauka fyrir annan daginn.

    * með þeim fyrirvara að það fáist starfsfólk til að vinna á þessum tíma
    Bókun fundar Lagt til að tillögur nefndarinnar um breytingar á opnunartíma sundlaugarinnar á Laugalandi sumarið 2026 verði samþykktar.

    IPG tók til máls.

    Samþykkt samhljóða.