Málsnúmer 2604067

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 5. fundur - 15.07.2026

Sýslumaðurinn á Suðurlandi óskar eftir umsögn vegna beiðni Davíðs Þórs Björgvinssonar fyrir hönd Thales slf., kt. 620514-0980, um rekstrarleyfi fyrir gistingu í flokki II, tegund "C" minna gistiheimili á lóðinni Brekkur 2b, rýmisnúmer 010101 fyrir 8 gesti. Umsókn barst 22.04.2026.
Byggingarfulltrúi getur ekki veitt jákvæða umsögn vegna umsóknar um rekstrarleyfi að svo stöddu, þar sem brunavarnir í húsinu reyndust ófullnægjandi við skoðun.

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 13. fundur - 20.10.2026

Sýslumaðurinn á Suðurlandi óskar eftir umsögn vegna beiðni Davíðs Þórs Björgvinssonar fyrir hönd Thales slf., kt. 620514-0980, um rekstrarleyfi fyrir gistingu í flokki II, tegund "C" minna gistiheimili á lóðinni Brekkur 2b, rýmisnúmer 010101 fyrir 8 gesti. Umsókn barst 22.04.2026.
Embætti byggingarfulltrúa er ekki kunnugt um að gerðar hafi verið breytingar á umræddu húsnæði frá því sem skráð er í fasteignaskrá.

Byggingarfulltrúi staðfestir að umrædd starfsemi er í samræmi við samþykkta notkun húsnæðisins og gerir því ekki athugasemdir vegna tiltekinnar starfsemi í umræddu húsnæði.

Byggingarfulltrúi vill árétta að umsækjandi ber ábyrgð á að húsnæðið uppfylli skilyrði um brunavarnir og að húsnæðið sé fullnægjandi m.t.t. laga um hollustuhætti og mengunarvarnir. Áréttað er að neysluvatn á staðnum þarf að uppfylla kröfur um gæði vatns skv. reglugerð nr. 536/2001 m.s.br.

Byggðarráð Rangárþings ytra - 5. fundur - 28.10.2026

Sýslumaðurinn á Suðurlandi óskar eftir umsögn vegna beiðni Davíðs Þórs Björgvinssonar fyrir hönd Thales slf., kt. 620514-0980, um rekstrarleyfi fyrir gistingu í flokki II, tegund "C" minna gistiheimili á lóðinni Brekkur 2b, rýmisnúmer 010101 fyrir 8 gesti. Umsókn barst 22.04.2026.

Lagt er til að sveitarstjórn geri ekki athugasemdir við beiðnina.