Málsnúmer 2605026

Vakta málsnúmer

Skipulags- og umferðarnefnd - 67. fundur - 21.05.2026

Landeigandi óskar eftir heimild til að leggja fram tillögu að deiliskipulagi fyrir land sitt, Ægissíðu 3 lóð 3. Gert verði ráð fyrir byggingu þriggja íbúðarhúsa, fimm gestahúsa, geymslu og skemmu. Skipulagsgögn frá Eflu dags. 18.5.2026.
Skipulags- og umferðarnefnd samþykkir að veita heimild til deiliskipulagsgerðar og leggur til að fallið verði frá kynningu lýsingar þar sem skipulagsáætlun samræmist stefnu aðalskipulagsins. Skipulagsnefnd samþykkir jafnframt framlagða tillögu og leggur til að hún verði auglýst skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Skipulags- og umferðarnefnd - 4. fundur - 06.08.2026

Landeigandi hefur lagt fram tillögu að deiliskipulagi fyrir land sitt, Ægissíðu 3 lóð 3. Gert verði ráð fyrir byggingu þriggja íbúðarhúsa, fimm gestahúsa, geymslu og skemmu. Tillagan var auglýst frá og með 28.5.2026 til og með 15.7.2026. Alls bárust umsagnir frá 6 umsagnaraðilum. Ekki var um beinar athugasemdir að ræða heldur frekar ábendingar til betri leiðar. Umsagnir má skoða undir máli nr. 675/2026 í skipulagsgátt.
Skipulags- og umferðarnefnd hefur farið yfir fram komnar umsagnir. Nefndin telur að búið sé að taka tillit til fram kominna ábendinga í fyrirliggjandi tillögu og leggur til að tillagan verði send Skipulagsstofnun til endanlegrar afgreiðslu í samræmi við 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Skipulags- og umferðarnefnd - 6. fundur - 17.09.2026

Landeigandi hefur lagt fram tillögu að deiliskipulagi fyrir land sitt, Ægissíðu 3 lóð 3. Gert verði ráð fyrir byggingu þriggja íbúðarhúsa, fimm gestahúsa, geymslu og skemmu. Tillagan var auglýst frá og með 28.5.2026 til og með 15.7.2026. Engar athugasemdir bárust frá umsagnaraðilum en athugasemd barst frá Skipulagsstofnun varðandi nýtingarhlutfall og samræmi við aðalskipulag. Lögð er fram uppfærð tillaga frá Eflu dags. 14.9.2026.
Skipulags- og umferðarnefnd hefur farið yfir fram komnar athugasemdir. Nefndin telur að búið sé að taka tillit til fram kominna athugasemda í fyrirliggjandi tillögu og leggur til að tillagan verði send Skipulagsstofnun til endanlegrar afgreiðslu í samræmi við 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.