Málsnúmer 2605042

Vakta málsnúmer

Skipulags- og umferðarnefnd - 67. fundur - 21.05.2026

Lóðarhafar leggja fram tillögu að deiliskipulagi fyrir lóðir sínar. Lóðrirnar eru samliggjandi, samtals 12,6 ha að stærð, en afmörkun deiliskipulagsins nær til um 10,5 ha svæðis innan þeirra. Svæðið er skilgreint sem verslunar- og þjónustusvæði skv. aðalskipulagsbreytingu sem auglýst er samhliða. Gert er ráð fyrir gistingu fyrir allt að 100 gesti í allt að 50 gistihúsum, auk þjónustuhúss sem einnig er hugsað fyrir starfsmannaaðstöðu/íbúðir, verslun og sölu einfalda veitinga. Einnig er heimilt er að gera baðlaug og aðra afþreyingu fyrir gesti. Heildarbyggingarmagn beggja lóða skal ekki fara yfir 2.000 m². Skipulagslýsing fyrir sitt hvora lóðina var auglýst frá 12. febrúar til 27. mars 2026. Umsagnir bárust frá: HMS, Mílu, Landsneti, Veitum, Vegagerðinni, Náttúruverndarstofnun, Heilbrigðiseftirliti Suðurlands og Minjastofnun Íslands.

Eftir því sem við á hefur verið tekið tillit til umsagna. Skipulagsgögn frá Eflu dags. 18.5.2026.
Skipulags- og umferðarnefnd samþykkir fyrirliggjandi tillögu og leggur til að tillagan verði auglýst skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Skipulags- og umferðarnefnd - 4. fundur - 06.08.2026

Lóðarhafar leggja fram tillögu að deiliskipulagi fyrir lóðir sínar. Lóðirnar eru samliggjandi, samtals 12,6 ha að stærð, en afmörkun deiliskipulagsins nær til um 10,5 ha svæðis innan þeirra. Svæðið er skilgreint sem verslunar- og þjónustusvæði skv. aðalskipulagsbreytingu sem auglýst hefur verið samhliða. Gert er ráð fyrir gistingu fyrir allt að 100 gesti í allt að 50 gistihúsum, auk þjónustuhúss sem einnig er hugsað fyrir starfsmannaaðstöðu/íbúðir, verslun og sölu einfaldra veitinga. Einnig er heimilt er að gera baðlaug og aðra afþreyingu fyrir gesti. Heildarbyggingarmagn beggja lóða skal ekki fara yfir 2.000 m². Tillaga var auglýst frá og með 28.5.2026 til og með 15.7.2026. Umsagnir má skoða undir máli nr. 676/2026 í skipulagsgátt. Umsagnir bárust frá alls 7 aðilum. Athugasemdir bárust frá nærliggjandi lóðareigendum norðan Selsundslækjar. Lögð er fram samantekt á athugasemdum og ábendingum og drög að viðbrögðum við þeim.
Skipulags- og umferðarnefnd frestar afgreiðslu tillögunnar þar til breyting á aðalskipulagi hefur verið samþykkt að teknu tilliti til gerðar samgöngumats að kröfu Vegagerðarinnar.

Skipulags- og umferðarnefnd - 5. fundur - 20.08.2026

Ásgeir Jónsson frá Eflu fór yfir áherslur málsins
Lóðarhafar leggja fram tillögu að deiliskipulagi fyrir lóðir sínar. Lóðirnar eru samliggjandi, samtals 12,6 ha að stærð, en afmörkun deiliskipulagsins nær til um 10,5 ha svæðis innan þeirra. Svæðið er skilgreint sem verslunar- og þjónustusvæði skv. aðalskipulagsbreytingu sem auglýst hefur verið samhliða. Gert er ráð fyrir gistingu fyrir allt að 100 gesti í allt að 50 gistihúsum, auk þjónustuhúss sem einnig er hugsað fyrir starfsmannaaðstöðu/íbúðir, verslun og sölu einfaldra veitinga. Einnig er heimilt er að gera baðlaug og aðra afþreyingu fyrir gesti. Heildarbyggingarmagn beggja lóða skal ekki fara yfir 2.000 m². Tillaga var auglýst frá og með 28.5.2026 til og með 15.7.2026. Umsagnir má skoða undir máli nr. 676/2026 í skipulagsgátt. Umsagnir bárust frá alls 7 aðilum. Athugasemdir bárust frá nærliggjandi lóðareigendum norðan Selsundslækjar. Lögð er fram samantekt á athugasemdum og ábendingum og drög að viðbrögðum við þeim ásamt uppfærðum skipulagsgögnum.
Skipulags- og umferðarnefnd hefur farið yfir fram komnar umsagnir. Nefndin telur að búið sé að bregðast við fram komnum athugasemdum í fyrirliggjandi tillögu og leggur til að tillagan verði send Skipulagsstofnun til endanlegrar afgreiðslu í samræmi við 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Ásgeir Jónsson vék af fundi