Málsnúmer 2605075

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 11. fundur - 30.09.2026

Byggingarfulltrúi Rangárþings ytra hefur móttekið umsókn Róberts Orra Brooks Skúlasonar um byggingarleyfi vegna breyttrar notkunar sumarhúss í íbúðarhús á Hjartarstöðum (L176252), samkvæmt meðfylgjandi aðaluppdráttum Svövu Bjarkar Jónsdóttur, dags. 10.9.2026.
Byggingaráform eru samþykkt. Framkvæmdin fellur undir umfangsflokk 2. Byggingarleyfi verður gefið út þegar eftirfarandi liggur fyrir:
-Hönnunarstjóri hefur tilnefnt aðra hönnuði og þeir staðfest sig
-Hönnuðir hafa undirritað uppdrætti með rafrænni áritun sinni.
-Greinargerðir hönnuða hafi borist.
-Skráningartafla hefur borist.
-Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og lagt fram starfsábyrgðartryggingu.
-Byggingarstjóri hefur tilnefnt alla iðnmeistara og þeir staðfest sig á verkið.
-Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.