Málsnúmer 2606009

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 5. fundur - 15.07.2026

Sýslumaðurinn á Suðurlandi óskar eftir umsögn vegna beiðni Ólafs Brynjars Ásgeirssonar fir hönd Töltspors ehf., kt. 701112-0670 um rekstrarleyfi fyrir gistingu í flokki II, tegund "C" Minna gistiheimili að Ásholti, rýmisnúmer 010102 fyrir 4 gesti, í Rangárþingi ytra. Umsókn barst 4.6.2026.
Byggingarfulltrúi getur ekki veitt jákvæða umsögn vegna umsóknar um rekstrarleyfi að svo stöddu þar sem meðfylgjandi aðaluppdrættir eru ekki í samræmi við samþykktar teikningar byggingarfulltrúa.

Samkvæmt þeim aðaluppdráttum sem fylgja umsókninni hefur verið innréttuð íbúð í bílgeymslu. Slík breyting á notkun er leyfisskyld og þarf því að sækja um byggingarheimild vegna breyttrar notkunar rýmisins áður en unnt er að veita jákvæða umsögn um rekstrarleyfið.