Málsnúmer 2606010

Vakta málsnúmer

Sveitarstjórn Rangárþings ytra - 2. fundur - 10.06.2026

Sveitarstjóra verði falið að ræða við Vegagerðina um málið á grundvelli þeirra gagna sem fyrir liggja.

GA, EVG, IPG og MHG taka til máls

Samþykkt samhljóða.

Sveitarstjórn Rangárþings ytra - 3. fundur - 12.08.2026

Á 1. fundi sveitarstjórnar 1. júní var sveitarstjóra falið að ræða við Vegagerðina um uppsetningu fjárheldrar girðingar með Oddavegi við Þverárbrú.

Í framhaldi af þeirri ákvörðun átti sveitarstjóri samskipti við Vegagerðina um málið.

Niðurstaða þeirra samskipta er að samkvæmt upplýsingum Vegagerðarinnar er það í höndum landeigenda að sækja um uppsetningu girðingar með vegum. Vegagerðin tekur ákvörðun um slíkar umsóknir og ber stofnkostnað við uppsetningu girðingar samkvæmt reglum.

Eftir að girðing hefur verið reist verður hún hins vegar á ábyrgð viðkomandi landeigenda, sem annast viðhald hennar samkvæmt gildandi reglum.

Vegagerðin hefur jafnframt upplýst að verði komið upp samfelldri fjárheldri girðingu meðfram vegkaflanum verði núverandi ristarhlið fjarlægð.

Landeigendur sem óska eftir veggirðingu þurfa að leggja fram umsókn til Vegagerðarinnar, sveitarfélagið getur ekki gert það fyrir þeirra hönd þar sem viðhald yrði í framhaldi í höndum landeiganda.

GA og EVS tóku til máls.

Lagt fram til kynningar.