Málsnúmer 2606028

Vakta málsnúmer

Skipulags- og umferðarnefnd - 2. fundur - 18.06.2026

Gunnar Aron Ólason vék af fundi við meðferð og afgreiðslu þessa erindis.
Landsvirkjun óskar eftir að sveitarstjórn Rangárþings ytra gefi út framkvæmdaleyfi til handa fyrirtækinu fyrir efnistöku, allt að 30.000 m3, á efnistökusvæði E70 við Tungnaá. Fyrirhuguð efnistaka er ætluð til framkvæmda við Vaðölduver og aðrar framkvæmdir á vegum Landsvirkjunar á svæðinu. Álit HMS liggur fyrir þar sem það er mat stofnunarinnar að umrædd framkvæmd skuli ekki háð mati á umhverfisáhrifum.
Skipulags- og umferðarnefnd hefur farið yfir greinargerð og áætlun umsækjanda. Nefndin gerir engar athugasemdir við fyrirliggjandi gögn og leggur til að skipulagsfulltrúa verði falið að gefa út framkvæmdaleyfi að teknu tilliti til 5. greinar reglugerðar um framkvæmdaleyfi nr. 772/2012.
Gunnar Aron kom aftur inn á fundinn.

Umhverfis-, hálendis- og samgöngunefnd - 1. fundur - 04.08.2026

Landsvirkjun óskar eftir að sveitarstjórn Rangárþings ytra gefi út framkvæmdaleyfi til handa fyrirtækinu fyrir efnistöku, allt að 30.000 m3, á efnistökusvæði E70 við Tungnaá. Fyrirhuguð efnistaka er ætluð til framkvæmda við Vaðölduver og aðrar framkvæmdir á vegum

Landsvirkjunar á svæðinu. Álit HMS liggur fyrir þar sem það er mat stofnunarinnar að umrædd framkvæmd skuli ekki háð mati á umhverfisáhrifum.
Umhverfis,- samgöngu- og hálendisnefnd hefur farið yfir greinargerð og áætlun umsækjanda. Nefndin gerir engar athugasemdir við fyrirliggjandi gögn og leggur til að skipulagsfulltrúa verði falið að gefa út framkvæmdaleyfi að teknu tilliti til 5. greinar reglugerðar um framkvæmdaleyfi nr. 772/2012.