Málsnúmer 2606042
Vakta málsnúmerSkipulags- og umferðarnefnd - 5. fundur - 20.08.2026
Stækkun lóðarinnar er í samræmi við gildandi deiliskipulag. Nes 2 L193114 er með skráða stærð 500 m² skv. fasteignaskrá HMS. Lóðin stækkar nú um 527,8 m² og verður 1027,8 m². Mismunurinn kemur úr Lundur-Dvalarheimili, L164953 sem er með skráða stærð 25441 m² skv. fasteignaskrá HMS, og minnkar nú um 527,8 m² og verður 24913,2 m². Merkjalýsing frá Hörpu Birgisdóttur dags. 3.6.2026.
Skipulags- og umferðarnefnd gerir ekki athugasemdir við áformuð landskipti og leggur til að landskiptin verði samþykkt.