Málsnúmer 2606069
Vakta málsnúmerSkipulags- og umferðarnefnd - 3. fundur - 02.07.2026
Landeigendur óska eftir heimild til breytinga á gildandi deiliskipulagi, dags. 27.11.2017. Lóð Rangárstígs 9 stækkar um 6374 m2 og er ný mæld stærð lóðar 12.143 m2. Skipulagssvæðið er stækkað sem um nemur lóð Rangárstígs 9 og er ný stærð svæðis 2,5 ha. Byggingarreitur er stækkaður til austurs og norðurs. Árbakki er aðlagaður í samræmi við fjarkönnunargögn. Hnitkrossum er bætt við á uppdrátt.
Að undanskildum þeim breytingum sem fjallað er um hér gilda ákvæði í gildandi skipulagi.
Að undanskildum þeim breytingum sem fjallað er um hér gilda ákvæði í gildandi skipulagi.
Skipulags- og umferðarnefnd samþykkir að veita heimild til breytingar á gildandi deiliskipulagi. Nefndin samþykkir framlagða tillögu og leggur til að hún verði auglýst skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Skipulags- og umferðarnefnd - 6. fundur - 17.09.2026
Landeigendur óska eftir heimild til breytinga á gildandi deiliskipulagi, dags. 27.11.2017. Lóð Rangárstígs 9 stækkar um 6374 m2 og er ný mæld stærð lóðar 12.143 m2. Skipulagssvæðið er stækkað sem um nemur lóð Rangárstígs 9 og er ný stærð svæðis 2,5 ha. Byggingarreitur er stækkaður til austurs og norðurs. Árbakki er aðlagaður í samræmi við fjarkönnunargögn. Hnitkrossum er bætt við á uppdrátt. Að undanskildum þeim breytingum sem fjallað er um hér gilda ákvæði í gildandi skipulagi.
Tillagan var auglýst frá og með 15.7.20026 til og með 2.9.2026. Umsagnir bárust frá alls 8 aðilum og má nálgast allar umsagnir undir máli nr. 886/2026 í skipulagsgátt. Engar athugasemdir voru gerðar við tillöguna á auglýsingatíma.

Skipulags- og umferðarnefnd telur að fram komnar umsagnir leiði ekki til breytinga á auglýstri tillögu og leggur til að tillagan verði send Skipulagsstofnun til endanlegrar afgreiðslu í samræmi við 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.