Málsnúmer 2607004
Vakta málsnúmerAfgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 5. fundur - 15.07.2026
Byggingarfulltrúi Rangárþings ytra hefur móttekið umsókn Guðmundar Hjaltasonar, fh. Sæmundar B. Ágústssonar, um byggingarheimild til byggingar 3.706,6 m² fjóss á jörðinni Bjólu, samkvæmt meðfylgjandi aðaluppdráttum Eflu, dags. 1.7.2026.
Skipulags- og umferðarnefnd - 4. fundur - 06.08.2026
Byggingarfulltrúi Rangárþings ytra hefur móttekið umsókn Guðmundar Hjaltasonar, fh. Sæmundar B. Ágústssonar, um byggingarheimild til byggingar 3.706,6 m² fjóss á jörðinni Bjólu, samkvæmt meðfylgjandi aðaluppdráttum Eflu, dags. 1.7.2026.
Málinu er vísað til skipulags- og umferðarnefndar til umfjöllunar og afgreiðslu, þar sem deiliskipulag liggur ekki fyrir á svæðinu.
Að mati byggingarfulltrúa er um að ræða umfangsmikið og tæknilega flókið búrekstrarmannvirki, alls 3.706,6 m² að stærð, með mjólkurhúsi, kanalkerfi, fóðrunarkerfi, gjafaróbotum og fjórum mjaltaróbotum. Með hliðsjón af stærð, flækjustigi og þeim tæknikerfum sem mannvirkið inniheldur telst það falla í umfangsflokk 2 samkvæmt byggingarreglugerð og er því byggingarleyfisskylt.

Skipulags- og umferðarnefnd telur ekki ástæðu til að krefjast gerðar deiliskipulags fyrir bújörðina en telur að grenndarkynna þurfi áformin til aðliggjandi jarðeigenda áður en leyfi verður veitt.
Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 8. fundur - 18.08.2026
Byggingarfulltrúi Rangárþings ytra tekur að nýju fyrir umsókn Guðmundar Hjaltasonar, fh. Sæmundar B. Ágústssonar, um byggingarleyfi til byggingar 3.706,6 m² fjóss á jörðinni Bjólu, samkvæmt aðaluppdráttum Eflu, dags. 1.7.2026.
Málið var áður tekið fyrir á afgreiðslufundi byggingarfulltrúa og vísað til skipulags- og umferðarnefndar þar sem deiliskipulag liggur ekki fyrir á svæðinu. Skipulags- og umferðarnefnd taldi ekki ástæðu til að krefjast gerðar deiliskipulags fyrir bújörðina en lagði til að byggingaráformin yrðu grenndarkynnt aðliggjandi lóðarhöfum áður en byggingarleyfi yrði veitt. Sveitarstjórn staðfesti niðurstöðu nefndarinnar samhljóða.
Fyrir liggur undirritað samþykki aðliggjandi lóðarhafa fyrir fyrirhuguðum byggingaráformum. Málið er því lagt fram að nýju til afgreiðslu byggingarfulltrúa.

Byggingaráform eru samþykkt. Framkvæmdin fellur undir umfangsflokk 2. Byggingarleyfi verður gefið út þegar eftirfarandi liggur fyrir:
-Hönnunarstjóri hefur tilnefnt aðra hönnuði og þeir staðfest sig
-Hönnuðir hafa undirritað uppdrætti með rafrænni áritun sinni.
-Greinargerðir hönnuða hafi borist.
-Skráningartafla hefur borist.
-Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og lagt fram starfsábyrgðartryggingu.
-Byggingarstjóri hefur tilnefnt alla iðnmeistara og þeir staðfest sig á verkið.
-Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.
Við yfirferð aðaluppdrátta voru gerðar athugasemdir við brunavarnir og skýrslu brunahönnuðar,
athugasemdir verða senda á hönnuð.