Málsnúmer 2607005
Vakta málsnúmerAfgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 5. fundur - 15.07.2026
Byggingarfulltrúi Rangárþings ytra hefur móttekið umsókn Kristjáns Andréssonar, fh. Húsaneshesta ehf., um byggingarheimild til byggingar 568,8 m² hesthúss úr steinsteypu, sem skipt er upp í fimm rými, samkvæmt aðaluppdráttum Torfabæjar ehf., dags. 30.6.2026.
Skipulags- og umferðarnefnd - 4. fundur - 06.08.2026
Byggingarfulltrúi Rangárþings ytra hefur móttekið umsókn Kristjáns Andréssonar, fh. Húsaneshesta ehf., um byggingarheimild til byggingar 568,8 m² hesthúss úr steinsteypu, sem skipt er upp í fimm rými, samkvæmt aðaluppdráttum Torfabæjar ehf., dags. 30.6.2026. Afgreiðslu málsins er frestað og því vísað til skipulags- og umferðarnefndar til frekari umfjöllunar og afgreiðslu, þar sem stærð rýmis 010101 fer umfram þær stærðarheimildir sem fram koma í gildandi deiliskipulagi. Samkvæmt skilmálum deiliskipulags er gert ráð fyrir rýmum á bilinu 10-15m að lengd.
Skipulags- og umferðarnefnd hafnar erindinu þar sem framlögð áform umsækjanda eru ekki í samræmi við gildandi deiliskipulag. Nefndin leggur til að fundað verði með hönnuði og umsækjanda auk byggingarfulltrúa og fulltrúum sveitarfélagsins um leiðir til lausnar.
Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 8. fundur - 18.08.2026
Byggingarfulltrúi Rangárþings ytra tekur að nýju fyrir umsókn Kristjáns Andréssonar, fh. Húsaneshesta ehf., um byggingarheimild til byggingar 568,8 m² hesthúss úr steinsteypu, sem skipt er upp í fimm rými, samkvæmt aðaluppdráttum Torfabæjar ehf., dags. 30.6.2026.
Málið var áður tekið fyrir á afgreiðslufundi byggingarfulltrúa og afgreiðslu þess frestað þar sem stærð rýmis 010101 samræmdist ekki stærðarskilmálum gildandi deiliskipulags. Málinu var vísað til skipulags- og umferðarnefndar, sem taldi framlögð áform ekki samræmast gildandi deiliskipulagi og lagði til að fundað yrði með hönnuði, umsækjanda, byggingarfulltrúa og fulltrúum sveitarfélagsins um mögulegar leiðir til lausnar.
Í kjölfar þeirrar umfjöllunar liggur nú fyrir að fyrirhugað er að skipta lóðinni upp í tvær sjálfstæðar lóðir þannig að áformin geti samræmst skilmálum gildandi deiliskipulags. Málið er því lagt fram að nýju til afgreiðslu byggingarfulltrúa.

Byggingaráform eru samþykkt. Framkvæmdin fellur undir umfangsflokk 1. Byggingarheimild verður gefin út þegar eftirfarandi liggur fyrir:
-Hönnuður hefur undirritað aðaluppdrætti með rafrænni áritun sinni.
-Skráningartafla hefur borist.
-Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og lagt fram starfsábyrgðartryggingu.
-Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.

Við yfirferð aðaluppdrátta eru eftirfarandi athugasemdir gerðar:
- Hurðir fyrir stórgripi skulu vera að lágmarki 1.200 mm á breidd.
- Merkja skal brunahólfun á milli rýma.
- Merkja skal þakhalla á uppdráttum.
- Merkja skal staðsetningu handslökkvitækja á grunnmynd.
- Fjölga þarf reykskynjurum þar sem rými fara yfir 80 m².