Málsnúmer 2607011

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 5. fundur - 15.07.2026

Byggingarfulltrúi Rangárþings ytra hefur móttekið umsókn Helga Indriðasonar, fh. Wolfgangs Beckers, um byggingarheimild til byggingar þriggja 79,2 m² gestahúsa á reit G1 í landi Hjartalands, samkvæmt aðaluppdráttum ASK arkitekta, dags. 24.6.2026.
Byggingaráform eru samþykkt. Framkvæmdin fellur undir umfangsflokk 1. Byggingarheimild verður gefin út þegar eftirfarandi liggur fyrir:
-Hönnuður hefur undirritað aðaluppdrætti með rafrænni áritun sinni.
-Skráningartafla hefur borist.
-Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og lagt fram starfsábyrgðartryggingu.
-Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.
Við yfirferð aðaluppdrátta voru eftirfarandi athugasemdir gerðar:
Gera þarf grein fyrir uppbyggingu þakvirkis, þ.e þykkt varmaeinangrunar og þakhalla.
Merkja þarf handslökkvitæki á grunnmynd.
Merkja þarf stærð björgunarops.