Málsnúmer 2607017
Vakta málsnúmerAfgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 5. fundur - 15.07.2026
Byggingarfulltrúi Rangárþings ytra hefur móttekið umsókn Guðmundar Hjaltasonar hjá Eflu, fh. Félagsbúið Saurbær, um byggingarheimild til byggingar 954,2 m² fjóss á jörðinni Saurbæ (L165155), samkvæmt aðaluppdráttum Eflu, dags. 6.7.2026.
Skipulags- og umferðarnefnd - 4. fundur - 06.08.2026
Byggingarfulltrúi Rangárþings ytra hefur móttekið umsókn Guðmundar Hjaltasonar hjá Eflu, fh. Félagsbúið Saurbær, um byggingarheimild til byggingar 954,2 m² fjóss á jörðinni Saurbæ (L165155), samkvæmt aðaluppdráttum Eflu, dags. 6.7.2026.
Málinu er vísað til skipulags- og umferðarnefndar til umfjöllunar og afgreiðslu, þar sem deiliskipulag liggur ekki fyrir á svæðinu.

Skipulags- og umferðarnefnd gerir ekki athugasemdir við áform umsækjanda þar sem fyrir liggur staðfesting og samþykki nærliggjandi jarðareigenda um áformin.
Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 7. fundur - 12.08.2026
Byggingarfulltrúi Rangárþings ytra tekur að nýju fyrir umsókn Guðmundar Hjaltasonar hjá Eflu, fh. Félagsbúið Saurbær, um byggingarheimild til byggingar 954,2 m² fjóss á jörðinni Saurbæ (L165155), samkvæmt aðaluppdráttum Eflu, dags. 6.7.2026.
Málið var áður tekið fyrir á afgreiðslufundi byggingarfulltrúa og vísað til skipulags- og umferðarnefndar þar sem deiliskipulag liggur ekki fyrir á svæðinu. Skipulags- og umferðarnefnd gerði ekki athugasemdir við áform umsækjanda, enda liggur fyrir staðfesting á samþykki nærliggjandi jarðareigenda fyrir áformunum.
Málið er því lagt fram að nýju til afgreiðslu byggingarfulltrúa.

Byggingaráform eru samþykkt. Framkvæmdin fellur undir umfangsflokk 1. Byggingarheimild verður gefin út þegar eftirfarandi liggur fyrir:
-Hönnuður hefur undirritað aðaluppdrætti með rafrænni áritun sinni.
-Skráningartafla hefur borist.
-Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og lagt fram starfsábyrgðartryggingu.
-Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.
Við yfirferð aðaluppdrátta voru eftirfarandi athugasemdir gerðar:
Farið er fram á brunahólfun tæknirýmis vegna fjarlægðar frá slökkvistöð og þar af leiðandi lengri viðbragðstíma slökkviliðs.

Gerð er krafa um að tæknirými verði sér brunahólf vegna fjarlægðar mannvirkis frá slökkvistöð.