Málsnúmer 2607031

Vakta málsnúmer

Umhverfis-, hálendis- og samgöngunefnd - 1. fundur - 04.08.2026

Landsvirkjun óskar eftir að sveitarstjórn Rangárþings ytra gefi út framkvæmdaleyfi til handa fyrirtækinu fyrir að setja upp búfjárræsi norðan við Landvegamót. Framkvæmdin er hluti af vegabótum á þjóðvegi nr. 1 (Hringvegur) og þjóðvegi nr. 26, Landvegur, við Landvegamót tengt framkvæmdum við vindorkuverið Vaðölduver, samkvæmt 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 6. gr. reglugerðar um framkvæmdaleyfi nr. 772/2012 .
Umhverfis,- samgöngu- og hálendisnefnd leggur til við sveitarstjórn að útgáfa framkvæmdaleyfis til ræsisgerðar á Landvegi sbr. framlagðan uppdrátt og önnur gögn málsins verði samþykkt. Nefndin leggur til að skipulagsfulltrúa verði falið að gefa út leyfið og hafa eftirlit með framkvæmdunum.

Skipulags- og umferðarnefnd - 4. fundur - 06.08.2026

Landsvirkjun óskar eftir að sveitarstjórn Rangárþings ytra gefi út framkvæmdaleyfi til handa fyrirtækinu fyrir að setja upp búfjárræsi norðan við Landvegamót. Framkvæmdin er hluti af vegabótum á þjóðvegi nr. 1 (Hringvegur) og þjóðvegi nr. 26, Landvegur, við Landvegamót tengt framkvæmdum við vindorkuverið Vaðölduver, samkvæmt 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 6. gr. reglugerðar um framkvæmdaleyfi nr. 772/2012 .
Skipulags- og umferðarnefnd leggur til við sveitarstjórn að útgáfa framkvæmdaleyfis til lagningar búfjárræsis undir Landveg sbr. framlagðan uppdrátt og önnur gögn málsins verði samþykkt. Nefndin leggur til að skipulagsfulltrúa verði falið að gefa út leyfið og hafa eftirlit með framkvæmdunum.