Málsnúmer 2607036
Vakta málsnúmerAfgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 5. fundur - 15.07.2026
Sýslumaðurinn á Suðurlandi óskar eftir umsögn vegna beiðni Ævars Svans Sigurðssonar fyrir hönd Skuggasíðu ehf., kt. 640622-0320, um rekstrarleyfi fyrir gistingu í flokki II, tegund "H" frístundahús á Ægissíðu 7 í Rangárþingi ytra, rýmisnúmer 020101 fyrir 2 gesti. Umsókn barst 26.6.2026.
Byggingarfulltrúi staðfestir að umrædd starfsemi er í samræmi við samþykkta notkun húsnæðisins og gerir því ekki athugasemdir vegna tiltekinnar starfsemi í umræddu húsnæði en vill árétta að um er að ræða gistihús en ekki frístundahús.
Byggingarfulltrúi vill árétta að umsækjandi ber ábyrgð á að húsnæðið uppfylli skilyrði um brunavarnir og að húsnæðið sé fullnægjandi m.t.t. laga um hollustuhætti og mengunarvarnir. Áréttað er að neysluvatn á staðnum þarf að uppfylla kröfur um gæði vatns skv. reglugerð nr. 536/2001 m.s.br.