Málsnúmer 2607037

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 5. fundur - 15.07.2026

Sýslumaðurinn á Suðurlandi óskar eftir umsögn vegna beiðni Sigurðar Sindra Magnússonar fyrir hönd Deluxe Lodge ehf., kt. 680923-0510, um rekstrarleyfi fyrir gistingu í flokki IV, tegund "A" Hótel að Tindaseli 1, rýmisnúmer 010101 og 020101 fyrir 30 gesti í gistingu og 40 gesti rýmisnúmer 010102 í veitingum . Umsókn barst 29.6.2026.
Byggingarfulltrúi staðfestir að umrædd starfsemi er í samræmi við samþykkta notkun húsnæðisins og gerir því ekki athugasemdir vegna tiltekinnar starfsemi í umræddu húsnæði.

Byggingarfulltrúi vill árétta að umsækjandi ber ábyrgð á að húsnæðið uppfylli skilyrði um brunavarnir og að húsnæðið sé fullnægjandi m.t.t. laga um hollustuhætti og mengunarvarnir. Áréttað er að neysluvatn á staðnum þarf að uppfylla kröfur um gæði vatns skv. reglugerð nr. 536/2001 m.s.br.

Sveitarstjórn Rangárþings ytra - 3. fundur - 12.08.2026

Sýslumaðurinn á Suðurlandi óskar eftir umsögn vegna beiðni Sigurðar Sindra Magnússonar fyrir hönd Deluxe Lodge ehf., kt. 680923-0510, um rekstrarleyfi fyrir gistingu í flokki IV, tegund "A" Hótel að Tindaseli 1, rýmisnúmer 010101 og 020101 fyrir 30 gesti í gistingu og 40 gesti rýmisnúmer 010102 í veitingum . Umsókn barst 29.6.2026.

Lagt er til að sveitarstjórn geri ekki athugasemd við beiðnina.

Samþykkt samhljóða.