Sveitarstjórn gerir ekki athugasemd við að keppnin fari fram á vegum sem tilgreindir eru í umsókn innan sveitarfélagsins þann 22. ágúst. Vakin er athygli á því að leita þarf umsagnar fleiri aðila þar sem ekki allir vegir tilheyra sveitarfélaginu Rangárþingi ytra. Aðrir aðilar eru m.a. Landsvirkjun og Vegagerðin.
Nefndin setur eftirfarandi skilyrði:
1. Forsvarsmenn keppninnar gæti þess að fylgt verði merktum leiðum og ekki sé ekið utan vega.
2. Keppnishaldari upplýsi þá aðila sem hafa með skipulagðar ferðir á svæðinu að gera vegna keppninnar. Þá sérstaklega rekstraraðila í Hrauneyjum, Landmannahelli og Áfangagili sem og aðra ferðaþjónustuaðila á svæðinu.
3. Mönnuð vöktun verði á öllum lokunarpóstum.
4. Þess sé gætt að allur frágangur verði til fyrirmyndar. Þeir vegir sem farið verði um verði heflaðir á kostnað keppnishaldara strax að keppni lokinni. Allar merkingar og allt rusl verði fjarlægt af hálfu keppnishaldara.
5. Keppnishaldari tryggi að almenningur á svæðinu verði ekki fyrir óþarfa óþægindum á meðan kynningarakstur fer fram fyrir keppni.

Samþykkt samhljóða.