Málsnúmer 2607044
Vakta málsnúmerAfgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 6. fundur - 05.08.2026
Byggingarfulltrúi Rangárþings ytra hefur móttekið umsókn Helga Guðjóns Bragasonar, fh. Ístaks hf., um byggingarleyfi fyrir 786 m² vinnubúðum með 44 gistirýmum og aðstöðurýmum fyrir starfsfólk á Landmannaafrétti í tengslum við stækkun Sigölduvirkjunar, samkvæmt aðaluppdráttum hönnuðar, dags. 26.6.2026.
Afgreiðslu málsins er frestað. Athugasemdir byggingarfulltrúa verða sendar hönnuði til yfirferðar og úrbóta áður en málið verður tekið til afgreiðslu að nýju.