Málsnúmer 2607054

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 6. fundur - 05.08.2026

Byggingarfulltrúi Rangárþings ytra hefur móttekið umsókn Anne Bruun Hansen, fh. Landsvirkjunar, um byggingarleyfi fyrir vinnubúðum, mhl. 01-05, alls 1.545,5 m², með gistirýmum, aðstöðurýmum og skrifstofum fyrir starfsfólk á Landmannaafrétti, í tengslum við stækkun Sigölduvirkjunar, samkvæmt aðaluppdráttum hönnuðar, dags. 14.7.2026.
Afgreiðslu málsins er frestað. Athugasemdir byggingarfulltrúa verða sendar hönnuði til yfirferðar og úrbóta áður en málið verður tekið til afgreiðslu að nýju.