Málsnúmer 2607055

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 6. fundur - 05.08.2026

Byggingarfulltrúi Rangárþings ytra hefur móttekið umsókn Landsvirkjunar um byggingarheimild fyrir uppsetningu tveggja upplýsingaskilta á bílastæði sunnan Tungnaár við Fjallabaksleið nyrðri (F208), í tengslum við stækkun Sigöldustöðvar. Skiltin eru ætluð til tímabundinnar notkunar á framkvæmdartíma verksins, áætlað til fjögurra ára, og er þeim ætlað að veita almenningi upplýsingar um framkvæmdina og öryggisráðstafanir á svæðinu.
Byggingaráform eru samþykkt með fyrirvara um að jákvæð umsögn Forsætisráðuneytisins liggi fyrir vegna framkvæmdarinnar.
Framkvæmdin fellur undir umfangsflokk 1. Byggingarheimild verður gefin út þegar eftirfarandi skilyrði hafa verið uppfyllt:
-Jákvæð umsögn Forsætisráðuneytisins liggur fyrir.
-Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og lagt fram starfsábyrgðartryggingu.
-Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.