Málsnúmer 2608005F

Vakta málsnúmer

Sveitarstjórn Rangárþings ytra - 4. fundur - 09.09.2026

Fundargerð byggðarráðs lögð fram og staðfest.
  • Byggðarráð Rangárþings ytra - 3 Sveitarstjóra er falið að undirrita merkjalýsingu þegar allir aðrir landeigendur hafa gert það.

    Samþykkt samhljóða
    Bókun fundar Lagt til að samþykkja niðurstöðu byggðarráðs.

    Samþykkt samhljóða.
  • Byggðarráð Rangárþings ytra - 3 Byggðarráð leggur til að Þrúðvangur 18 verði settur í söluferli.

    Samþykkt samhljóða
    Bókun fundar Lagt til að samþykkja niðurstöðu byggðarráðs.

    IPG og EVS tóku til máls.

    Samþykkt samhljóða.
  • Byggðarráð Rangárþings ytra - 3 Lagt er til að fela markaðs- og kynningarfulltrúa að kalla eftir hugmyndum frá íbúum um með hvaða hætti verði haldið uppá 100 ára afmæli Hellu. Í framhaldi taki markaðs-, menningar- og jafnréttismálanefnd málið fyrir og leggi til næstu skref í undirbúningi afmælisárs.

    Gera þarf ráð fyrir kostnaði á fjárhagsáætlun 2027 vegna afmælisárs.

    Samþykkt samhljóða.
    Bókun fundar Lagt til að samþykkja niðurstöðu byggðarráðs.

    IPG tók til máls.

    Samþykkt samhljóða.
  • Byggðarráð Rangárþings ytra - 3 Lögð fram drög að samstarssamning á milli UMFÍ, HSK og Rangárþings ytra varðandi Landsmót 50 á Hellu 23. - 25. júní 2027.

    Byggðarráð leggur til að sveitarstjórn staðfesti samninginn.
    Bókun fundar Lagt til að samþykkja niðurstöðu byggðarráðs.

    Samþykkt samhljóða.
  • Byggðarráð Rangárþings ytra - 3 Farið yfir tillögur að næstu skrefum og þær ræddar. Lagt er til að haldinn verði vinnufundur Byggðarráðs um málið.

    Sveitarstjóra falið að vinna málið áfram.
    Bókun fundar Lagt til að samþykkja niðurstöðu byggðarráðs.

    Samþykkt samhljóða.
  • Byggðarráð Rangárþings ytra - 3 Sýslumaðurinn á Suðurlandi óskar eftir umsögn vegna beiðni Úlfs Ísfelds Rögnvaldssonar fyrir hönd Lake cabin ehf., kt. 300495-2149 um rekstrarleyfi fyrir gistingu í flokki II, tegund "C" minna gistiheimili á lóðinni Hagi lóð, L192681, Rangárþingi ytra. Umsókn barst 24.11.2025.

    Lagt er til að sveitarstjórn geri ekki athugasemd við beiðnina.

    Samþykkt samhljóða.
    Bókun fundar Lagt til að samþykkja niðurstöðu byggðarráðs.

    Samþykkt samhljóða.
  • Byggðarráð Rangárþings ytra - 3 Sýslumaðurinn á Suðurlandi óskar eftir umsögn vegna beiðni Ævars Svans Sigurðssonar fyrir hönd Skuggasíðu ehf., kt. 640622-0320, um rekstrarleyfi fyrir gistingu í flokki II, tegund "H" frístundahús á Ægissíðu 7 í Rangárþingi ytra, rýmisnúmer 020101 fyrir 2 gesti. Umsókn barst 26.6.2026.

    Lagt er til að sveitarstjórn geri ekki athugasemd við beiðnina.

    Samþykkt samhljóða.
    Bókun fundar Lagt til að samþykkja niðurstöðu byggðarráðs.

    IPG víkur af fundi undir þessum lið.

    Samþykkt samhljóða.

  • Byggðarráð Rangárþings ytra - 3 Sveitarstjórn vísaði erindi Héraðsnefndar um tilnefningu í Öldungaráð til Byggðarráðs.

    Lagt er til að tilnefna Halldóru Þorvarðardóttur sem aðalmann og Pálínu Sigríði Kristinsdóttur til vara.

    Samþykkt samhljóða.
    Bókun fundar Lagt til að samþykkja niðurstöðu byggðarráðs.

    Samþykkt samhljóða.