Málsnúmer 2608008

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 7. fundur - 12.08.2026

Byggingarfulltrúi Rangárþings ytra hefur móttekið umsókn Vigfúsar Halldórssonar, fh. 6260 ehf., um byggingarheimild til byggingar 223 m² sumarhúss með bílgeymslu ásamt 75,9 m² gestahúsi með bílgeymslu, samkvæmt aðaluppdráttum Balsa ehf., dags. 20.7.2026.
Afgreiðslu málsins er frestað þar sem fyrirhuguð stærð aukahúss er umfram heimilaða stærð samkvæmt gildandi deiliskipulagi.

Málinu er vísað til skipulags- og umferðarnefndar til frekari umfjöllunar og afgreiðslu.


Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 8. fundur - 18.08.2026

Byggingarfulltrúi Rangárþings ytra tekur að nýju fyrir umsókn Vigfúsar Halldórssonar, fh. 6260 ehf., um byggingarheimild til byggingar 223 m² sumarhúss með bílgeymslu ásamt 75,9 m² gestahúsi með bílgeymslu á lóðinni Höfuðból 305 (L232010), samkvæmt aðaluppdráttum Balsa ehf., dags. 20.7.2026.



Málið var áður tekið fyrir á afgreiðslufundi byggingarfulltrúa 12.8.2026 og afgreiðslu þess frestað þar sem fyrirhuguð stærð aukahúss er umfram heimildir gildandi deiliskipulags. Málið er nú lagt fram að nýju til afgreiðslu byggingarfulltrúa.
Byggingarfulltrúi synjar umsókninni þar sem fyrirhugað 75,9 m² aukahús er umfram heimildir gildandi deiliskipulags, sem kveður á um að aukahús megi vera allt að 50 m² að stærð.